Wow Air rúllar út sértilboðum á nokkrum flugferðum sínum til Alicante og Tenerife þennan daginn. Sjálfsagt að skoða það fyrir sólþyrsta sem ekki nenna að bíða sumars.

Síðustu sætin til Alicante og Tenerife á tilboð hjá Wow Air

Síðustu sætin til Alicante og Tenerife á tilboð hjá Wow Air

Þannig finnst flug aðra leið til Tenerife á fjórum dagsetningum í apríl og maí þegar þetta er skrifað niður í 18.998 krónur á mann með sköttum og gjöldum en engum farangri. Fjögur þúsund krónur aukalega fyrir eina tösku og því raunverð kringum 23 þúsund aðra leið eða svo.

Sömuleiðis fæst flug aðra leið með öllu nema farangri til Alicante á sex dagsetningum þegar þetta er skrifað niður í 15.998 krónur. Plús fjögur þúsund fyrir töskudruslu og þá raunverð gróflega kringum 20 þúsund krónur á haus aðra leið.