Einhverjir vafrarar þarna úti hafa vafalaust rekist á svokallaðar Google auglýsingar Icelandair á hinum og þessum stöðum á netinu en slíkar birtast gjarnan ef fólk leitar að einhverju ferðatengdu. Gallinn sá að þær eru margar rangar.icefra

Fátt er verra en blekkjandi auglýsingar bæði fyrir viðskiptavini og ekki síður auglýsandann sjálfan.

Í fyrsta lagi er slíkt lögbrot en þar sem eftirlit er ekki til staðar er það ekkert sem íslensk fyrirtæki þurfa að óttast mikið.

Í öðru lagi eiga neytendur skýran rétt að kaupa vöru á auglýstu verði jafnvel þó um mistök sé að ræða.

Í þriðja lagi er þetta merki um að fyrirtækið er ekki á tánum í sínu markaðsstarfi eða er nokk sama um að misvísandi upplýsingar berist út. Nema hvoru tveggja sé.

Til Manchester fyrir 16.800? Það er ekki hægt. Ekkert slíkt verð finnst á bókunarvél Icelandair út þetta ár. Skjáskot

Til Manchester fyrir 16.800? Það er ekki hægt. Ekkert slíkt verð finnst á bókunarvél Icelandair út þetta ár. Skjáskot

Ótt og títt síðustu sólarhringa, nú síðast í morgun, hefur ritstjórn rekist á auglýsingu Icelandair til Frankfurt sem sjá má hér til hliðar. Verð frá 20.800 krónum aðra leið. Nema það er rangt og að þessu sinni flugfélaginu í óhag. Það er nefninlega hægt að finna fargjald niður í 18.455 krónur þessa leið á allnokkrum dagsetningum.

Sök sér að viðskiptavinur hagnist aðeins á röngum auglýsingum. Verra þegar flugfélagið hagnast. Eins og það gerir varðandi sams konar auglýsingar til Manchester sem einnig birtist reglulega, nú síðast í morgun. Þar er auglýst flug aðra leið til ensku borgarinnar niður í 16.800 krónur. Það fargjald finnst hvergi á bókunarvef Icelandair út þetta ár. Allra lægsta verð til Manchester fram til janúar 2016 kostar 17.455 krónur. Nema þetta gildi um ferðir í ágúst 2016 kannski.

Þetta er annað dæmi á skömmum tíma sem við finnum þar sem tiltekið lágmarksverð á flugi reynist ekki vera rétt þegar eftir var leitað eins og lesa má um hér. Það virðist því full ástæða til að hafa varann á sér gagnvart þessu risafyrirtæki.