Tíðindi

Röskun hjá Icelandair

  28/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Icelandair hefur aflýst seinna áætlunarflugi sínu til Heathrow í London á miðvikudaginn kemur vegna verkfalls starfsmanna í vegabréfaskoðun en búist er við miklum og langvarandi töfum vegna þess þann dag eins og Fararheill.is greindi frá fyrir skömmu.

Fara tvær vélar flugfélagsins alla jafna á milli Keflavíkur og London daglega á miðvikudögum og mun fyrra flug fara samkvæmt áætlun þó farþegar megi búast við töfum á Heathrow en hið seinna verður fellt niður með öllu.

Bent er á það á vef Icelandair að fólk fylgist grannt með því fleiri breytingar gætu átt sér stað.

Hafa flugmálayfirvöld í Bretlandi varað við að tafir geti þýtt að flugstöðin að Heathrow fyllist og gerist það verða farþegar að gjöra svo vel að bíða í vélum sínum eftir að komast inn í flugstöð og út í kjölfarið enda aðeins lágmarks mannskapur við störf í vegabréfaskoðun.

Sjá má á vef Icelandair hvert þeir eigi að leita sem eiga bókað far þennan daginn og vilja frekari upplýsingar.

UPPFÆRT:

Iceland Express hefur einnig ákveðið að fella niður flug til London á miðvikudaginn kemur.

Kemur þetta fram í tilkynningu frá félaginu en engar upplýsingar um aflýsingu flugs er að finna á vef Iceland Express.