Oftast nær er raunveruleikinn mun fáránlegri en nokkur skáldsaga og það á líklega við um flugfélagið Pet Airways. Já, þú last þetta rétt. Það er raunverulega til flugfélag sem flytur gæludýr á fyrsta farrými.
Enn merkilegra er að rekstur þessa flugfélags sem sérhæfir sig í flutningi gæludýra milli staða í Bandaríkjunum gengur framar vonum og svo mjög að helstu fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa fjallað um fyrirtækið sem var stofnað af tveimur einstaklingum sem máttu ekki fljúga með litla sæta hundinn sinn hjá hefðbundnum flugfélögum.
Og dýrin fá ekki verri þjónustu en homo sapiens um borð því þar er ekki aðeins hæfur dýralæknir heldur og dýraþjónar sem sjá um að öllum dýrunum í skóginum, eða flugvélinni í þessu tilviki, líða afar vel alla ferðina.
Ekki fæst betur séð en Pet Airways sé nokkuð samkeppnishæft flugfélag. Smæstu dýrin ferðast fyrir sjö til átta þúsund krónur og þau stærstu fyrir 26 til 28 þúsund. Sem er nú ekki mikið dýrara en hefðbundið fargjald fyrir einstakling frá Íslandi til Evrópu aðra leið.
Heimasíða Pet Airways hér en fyrirtækið flýgur eingöngu innan Bandaríkjanna eins og sakir standa.






