Tíðindi

Isavia safnar persónuupplýsingum

  29/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Forráðamenn Keflavíkurflugvallar vilja gjarnan fá að kynnast þér nánar og í leiðinni fá afhentar um þig allar helstu persónuupplýsingar. En í staðinn gætirðu unnið spennandi utanlandsferð.

Auglýsir Keflavíkurflugvöllur nú nýjan leik á nokkrum vefmiðlum landsins þar sem fólk er sagt geta unnið helgarferð fyrir tvo ef það deili hvert það langi helst að fara í ferðalag. Er gefið í skyn í auglýsingunni að fólk geti tekið þátt í karókí í Tókíó í Japan eða dvalið maíkvöld í Moskvu.

Fyrir utan hversu fáránlegt er að gefa í skyn að helgarferð nægi til að hafa það kósí í Tókíó þangað sem tekur heila helgi að komast er einn stór hængur á þessu ágæta boði.

Hann er sá að enginn getur tekið þátt nema veita Keflavíkuflugvelli, sem rekinn er af ríkisfyrirtækinu Isavia, aðgang að öllum persónulegum upplýsingum á fésbókinni. Að öðrum kosti er viðkomandi útilokaður frá að eiga kosíkvöld í Moskvu eða Tókíó.

Verður að telja það hæpna markaðssetningu, og ólöglega ef marka má reglur facebook, að freista fólks með helgarferð gegn því að það galopni persónulega facebook síðu sína fyrir einhverju fólki sem vinnur í Keflavík.

Galið að mati ritstjórnar Fararheill.is

Yfirlýsing frá Keflavíkurflugvelli:

Á Facebook-síðu Keflavíkurflugvallar er forrit eða svokallað „app“ sem gefur notendum síðunnar tækifæri til að segja hvert þeir myndu vilja sjá beint flug frá Íslandi. Þetta er nýjung þar sem flugvöllurinn er að leita til almennings hvert beina eigi sjónum í framtíðinni. Þar liggja einu upplýsingarnar sem nýttar verða.
Þetta forrit eða „app“ sem er á Facebook síðu flugvallarins er í öllu í samræmi við reglur Facebook. Þeim upplýsingum sem forritið hefur aðgang að er ekki safnað með kerfisbundnum hætti og rétt er að benda á að það er ekki nauðsynlegt að gera „like“ á síðu Keflavíkurflugvallar til að eiga möguleika á að vinna.  
Einu persónuupplýsingarnar sem nýttar verða eru nöfn þeirra sem dregnir eru út til að hljóta vinning.