Tíðindi

Sviptingar í ferðabransanum

  30/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Nokkrar sviptingar hafa orðið í hinum alþjóðlega ferðabransa þessa vikuna. Í gær fór bandaríska flugfélagið American Airlines fram á svokallaða gjaldþrotavörn sem heimild er fyrir í Bandaríkjunum áður en lýst er yfir formlegu þroti. Innan við vika er líka síðan virði hluta í bresku ferðaskrifstofunni Thomas Cook féllu um 80 prósent eftir magurt gengi.

Vekur þetta athygli því bæði fyrirtæki eru risar á sínum mörkuðum beggja vegna Atlantsála. American Airlines er eitt af þremur risum á bandarískum flugmarkaði og Thomas Cook er önnur stærsta ferðaskrifstofa Evrópu á eftir TUI Travel.

Að mati sérfræðinga bendir þetta til að fyrirtækin hafi aðeins haft takmarkað fjárhagslegt þol eftir kreppuna sem gekk yfir 2008 og nú séu einfaldlega allir varasjóðir tæmdir. Bætir ekki úr skák í tilfelli Thomas Cook að fyrirtækið jók úrval ferða sinna töluvert í fyrra og fram á veturinn en veðjaði þar á rangan hest því stór hluti þeirra ferða voru til landa í norðurhluta Afríku; Egyptalands og Túnis.

Líklegt er talið að annað hinna tveggja stóru flugfélaganna vestanhafs taki yfir vélar og að einhverju leyti yfir skuldbindingar American Airlines.

Það var einmitt það flugfélag sem Hannes Smárason, þáverandi yfirmaður FL Group, keypti hluti í fyrir rúmlega 30 milljarða króna á velmektarárum FL Group og veðjaði þar á mikla uppsveiflu hjá fyrirtækinu. Bullandi tap varð raunin og vilja sumir meina að þessi ákveðna fjárfesting Hannesar hafi verið fyrsta skrefið í fjárhagslega gröf FL Group.