Óhætt er fyrir alla þá Íslendinga sem hyggjast heimsækja London meðan á Ólympíuleikunum í júlí og ágúst stendur að hafa með sér góðar bækur sé ætlunin að fara um borgina í jarðlest eða strætisvögnum. Samgöngusvið borgarinnar gerir ráð fyrir 30 til 40 mínútna töfum á öllum helstu leiðum í borginni þennan tíma.
Birti samgöngusvið London áætlun sína um umferð í júlí og agúst og hvernig borgaryfirvöld hyggjast tækla þann aukna fjölda fólks sem vonir standa til að heimsæki London meðan Ólympíuleikarnir standa yfir. Eitthvað verður undan að láta og opnunardagana og lokadaginn verða verulegar umferðartafir víða í borginni og ekkert við því að gera.
Sjá má á meðfylgjandi korti hvernig menn sjá fyrir sér að umferðin verði þessa daga. Rauðu svæðin tákna alvarlegar tafir bæði á götum og eins í lestum og ljóst að allur miðbær borgarinnar verður meira og minna eitt umferðaröngþveiti á helstu álagstímum. Ekki síst þar sem ákveðnar leiðir verða lokaðar öðrum en keppendum og skipuleggjendum og þar fá engir meðalplebbar að fara um.
Góða skemmtun í London næsta sumar.







