Það var og! Eftir rúmlega eins árs baráttu viðskiptavina Primera Air um bætur vegna hryllilegs ferðalags frá Tenerife í ágúst á síðasta ári hefur fyrirtækið loks gefið eftir.

Heilt ár af þrefi og stressi tók farþega Primera Air að fá sínu fram gegn fyrirtækinu.
Ljóst má vera að Primera Air hans Andra Más Ingólfssonar verður að fá sér betri lögfræðinga. Fyrirtækið hefur barist á hæl og hnakka gegn því að greiða farþegum sínum tilskyldar bætur vegna TUTTUGU OG SEX STUNDA TAFA á flugi Primera frá Tenerife til Keflavíkur þann 26. ágúst 2015.
Ólöglært fólkið hjá Fararheill hafði því kyrfilega rétt fyrir sér þegar við hvöttum viðskiptavini til að láta hart mæta hörðu í október á síðasta ári. Skömmu síðar komst Samgöngustofa að sömu niðurstöðu: Primera Air væri skaðabótaskylt og skuldaði hverjum og einum farþega 400 evrur.
Andri Már Ingólfsson var hins vegar ekki á þeim buxum að sýna þá tillitssemi eða þjónustulund sem Primera Air stærir sig af í þessu tilfelli. Málið sent rakleitt til innanríkisráðuneytis til umfjöllunar þar sem málið hékk í ferli um margra mánaða skeið. En að lokum var niðurstaðan sú sama: Primera Air ber að greiða bætur og nú loks hafa fyrstu farþegar fengið skeyti um að bætur verði greiddar eftir fimm til sjö vikur.
Þó fyrr hefði verið…







