S kerjagarðurinn við Stokkhólm í Svíþjóð er eðli máls samkvæmt náttúruundur í efsta veldi. Þúsundir eyja og kletta sem hver maður og mús getur kallað sinn stað tímabundið.
Ekki er óalgengt að ferðafólk til Stokkhólms taki óhefðbundinn túr til einnar af þeim þúsundum eyja sem liggja utan við borgina. Allmargir ferðaþjónustuaðilar bjóða túra til smáeyja þar sem par eða hópur getur unað sér drykklanga stund án þess að sjá eða hitta ókunnugt fólk. Sem er aldeilis góð hugmynd á fallegum sólardegi.
En svo eru það hinir sem ekki geta heimsótt neinn stað án þess að gera eitthvað spes. Verulega spes.




