Eina ástæða þess að Róm var ekki byggð á einum degi er sú staðreynd að við þá vinnu voru notaðir ítalskir byggingaverkamenn.

Fokking fokk í Keflavík en við engu nær um ástæðuna. Mynd Heads Up Aviation

Fokking fokk í Keflavík en við engu nær um ástæðuna. Mynd Heads Up Aviation

Svo segir gamall brandari um þá ægifögru Rómarborg Ítala sem hver hugsandi kjaftur verður að heimsækja minnst einu sinni á lífsleiðinni. Öllu súrari er brandarinn um Íslendingana sem dvöldu vikutíma í borginni án þess að sjá tott né tetur af farangri sínum allan þann tíma.

Vísir og Mbl.is hafa gert málinu ágæt skil síðustu sólarhringa en það snérist um hóp fólks sem ekki fékk farangur sinn með þegar flogið var með flugfélaginu Wow Air til Rómar fyrir rúmri viku síðan. Hluti hópsins fékk ekki töskurnar sínar fyrr en sex dögum síðar og jafnvel þá þurfti fólk að sækja töskur sínar á flugvöllinn.

Það þarf ekki heilabrjót á borð við Vigdísi Hauksdóttur til að vita að það er komin fýla af manni eftir sex sólarhringa í sömu nærfötum. Skiptir þá fjöldi sturtuferða engu máli; það eru fötin sem farin eru að anga.

Eitt slær duglega við fregnir af því fólki sem kvartaði í fjölmiðla. Það er sem lífið sjálft hafi verið í töskunum. Í það minnsta svo margt ómissandi að dvölin í Róm varð hreint helvíti.

Nærföt, sokkar og svona smotterí þykir ekki sérstaklega dýrt í Róm. Sérstaklega ekki þegar um er að ræða útsölulok hjá fjölmörgum verslunum í borginni. Það þýðir nærur og jafnvel buxur líka á 60 til 80% afslætti frá verði sem almennt er hræódýrt á íslenskan mælikvarða. Einn úr ritstjórn gengur enn í Dolce&Gabbana gallabuxum sem þóttu móðins 2013 og kostuðu á útsölu heilar þrettán þúsund krónur í Róm á sínum tíma. Tveir þriðju þess sem fjöldaframleiddar Levi´s kosta á klakanum.

Að þessu sögðu er fjölmargt heimskulegt sem flugfélagið gerði sem olli meiri usla en ella hefði þurft. „Einhver mistök“ í Keflavík urðu þess valdandi að töskur Rómarfara fóru ekki með í flugið. Illu heilli er Fararheill á dauðalista Wow Air svo ekkert þýðir fyrir okkur að reyna að fá svör við því hvaða megafokk þurfti að eiga sér stað til að töskur fleiri tuga manna fóru ekki með í vélina til Rómar.

Það hefði samt verið gæfulegt fyrir fjölmiðlana að pípa á Ísavía útaf málinu sem svo hefði gefið samband við einn af þeim tveimur eða þremur aðilum sem sjá um að ferma og afferma vélarnar á vellinum. Hvað varð þess valdandi að töskur 50 farþega Wow Air til Rómar fóru ekki með? Hvers konar mistök áttu sér stað? Keflavíkurvöllur er ekki sá stærsti né sá flóknasti. Stelpurnar sem innrita í flugið þekkja ábyggilega Jóa Tomm í farangursdeildinni og öfugt. Og 80 töskur á færibandi er töluverður fjöldi af töskum, ekki satt? Var Jói Tomm og hans erlenda vinnufólk í pásu áður en Wow Air fór í loftið? Var verkfall í gangi eða réði fyrirtækið ekki við málið? Ef svo, hvaða fyrirtæki var þetta?

Hvorki Mbl né Vísir reyna að varpa ljósi á það sem er jú rót vandamálsins. Vandamáls sem margfaldaðist fyrir Wow Air vegna þess að þetta var allra síðasta ferðin til Rómar þetta árið. Wow Air í örvæntingu sendi farangurinn með öðrum aðila sem millilenti í Genf af öllum stöðum. Þar gleymdist hluti farangursins líka!

Wow Air gerði illt verra með því að koma farangrinum ekki til allra loks þegar töskurnar skiluðu sér ekki á áfangastað. Það gengur ekki upp að tilkynna fólki sem beðið hefur dögum saman eftir uppáhalds nærunum að sækja draslið upp á flugvöll. Í tilfellum fólk sem var ekki einu sinni statt í Róm. Það er ferðalag sem hefði getað eytt heilum degi af ferð fólks til Ítalíu.

Óboðlegt.

Einu gildir þó einhver samstarfsaðili Wow Air hafi fokkað eins og upplýsingafulltrúi Wow Air hélt fram í viðtölum. Það breytir bara engu. Ef fleiri dagar hafa liðið án þess að flugfélag komi farangri í réttar hendur þá er fullt púst á að koma töskunum til eigenda sinna no matter what. Allt annað er ömurleg þjónusta.