Það er sannarlega ástæða til að vekja athygli á þegar sérstaklega góð ferðatilboð bjóðast Íslendingum og skrambi lítið fer fyrir langbesta tilboðinu til og frá Osló í Noregi. Þar pakkar flugfélagið Primera Air öðrum samkeppnisaðilum gjörsamlega saman næstu mánuðina.
Primera hefur boðið um skeið og býður ennþá fram í mars á næsta ári flug aðra leið til Osló fyrir einungis 9.900 krónur. Sama fargjald er í boði frá Osló og hingað heim yfir sama tímabil. Það er því komist til höfuðborgar Noregs og heim aftur á innan við 20 þúsund krónur en ár og dagur er síðan slíkt hefur boðist Frónbúum.
Létt leit hjá Icelandair, SAS og Norwegian sem einnig fljúga þessa leið sýnir að spara má að minnsta kosti tíu þúsund krónur og oftast mun meira en það í febrúar og mars en fargjöld þessara flugfélaga nálgast 40 þúsund krónur að meðaltali.
Og hvern munar ekki um 20 þúsund krónur?
Vefur Primera Air hér.






