Úttekt Fararheill í fjórum mismunandi löndum leiðir í ljós að í öllum tilvikum er hægt að spara töluverða peninga með því að versla ekki við innlenda ferðaskrifstofu.
Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn hefur um skeið boðið upp á sjö nátta siglingu um Karíbahaf með lúxusfleyi en sú ferð er orðin uppseld þegar þetta er skrifað.
Sú ferð hjá ÚÚ fyrir tvo í klefa með svölum, og hver nennir að vera í gluggalausum innriklefa, kostar ódýrast 364.900 krónur á mann eða samtals 729.800 krónur fyrir hjón eða par. Innifalið er flug, ferðir til og frá skipi og gisting á hóteli um fimm nátta skeið fyrir og eftir siglinguna. Skoðunarferðir og áfengir drykkir eru ekki innifaldir en þjórfé og öll önnur gjöld.
Sama sigling keypt á heimasíðu skipafélagsins Royal Caribbean, Royalcaribbean.com, kostar hún 766 evrur á mann í klefa með svölum sem gerir samtals 262.000 krónur fyrir tvo saman miðað við miðgengi dagsins. Þjórfé, skattar og gjöld ekki innifalin. Þá munar 467.800 krónum en eftir er auðvitað flugið, ferðir til og frá skipi og hugsanlega gisting kjósi fólk það.
Kíkjum augnablik á tilboð skipafélagsins á heimasíðu þess í Bretlandi. Þar fæst þessi sama ferð í svalaklefa, Royalcaribbean.co.uk, á 650 pund á mann. Samtals kostnaður fyrir tvo er því miðað við miðgengi 270.600 krónur. Ekki kemur nákvæmlega fram hvað er innifalið og ekki en gera má ráð fyrir að skattar og gjöld séu aukakostnaður. Aftur er flug og annar kostnaður eftir.
En skoðum augnablik tilboð skipafélagsins í Danmörku, Royalcaribbean.dk. Þar finnst þessi sama ferð á 13.513 krónur danskar á mann eða samtals 308.400 krónur fyrir tvo saman. Það er sannarlega dýrara en sé litið á smáa letrið kemur í ljós hvers vegna. Hér er nefninlega allt innifalið í verðinu. Matur, afþreying, gjöld og skattar og síðast en ekki síst eru drykkjupeningar hér innifaldir. Hér er sem sagt allt upp á borði. Vitaskuld er flug, ferðir til og frá skipi og hugsanlega gisting enn eftir.
Það liggur því fyrir að með kaupum annars staðar en hjá Úrval Útsýn erum við að spara hingað til að lágmarki rúmar 420 þúsund krónur en eigum eftir að koma okkur til Orlando og að skipinu og mögulega planta rassi á hóteli einhverja daga.
Nú er flug með Icelandair ekki ódýrasta leiðin til Orlando í Flórída en það er eina beina leiðin á staðinn. Leit á vef flugfélagsins leiðir í ljós að flug til og frá Orlando 12. til 26. mars fæst á 127.090 á mann eða samanlagt 254.180 á hjón eða par.
Það fargjald plús dýrasti siglingapakkinn kostar tvo því samtals 562.580 krónur.
Enn eigum við því rúmar 167 þúsund krónur eftir og þurfum ekki að greiða aukagjöld fyrir nokkur glös af víni í sjö daga siglingunni okkar. Við þurfum þó að koma okkur frá Orlando til skips í Port Canaveral og til baka. Á flestum hótelum er hægt að fá skutlur og á netinu má sjá að skutl aðra leið kostar allt niður í 20 dollara. Ferðir fyrir tvo fram og til baka kostar okkur því rúmar 10 þúsund krónur.
Enn eigum við 157 þúsund krónur eftir. Nóg er af hótelum í Orlando og nágrenni og jafnvel góð hugmynd að panta herbergi við ströndina í stað Orlando sjálfrar sem fátt býður nema fyrir börnin. Vænlegra að leigja villu séu fleiri en tveir að fara saman en í öllu falli skulum við punga út 20 þúsund krónum fyrir sæmilegt hótel í fimm daga með morgunverði.
Viti menn! Við eigum ennþá rúmar 50 þúsund krónur í vasanum miðað við tilboð Úrval Útsýn. Þó erum við ekki að njóta sértilboða á hótelum, siglingunni eða hjá Icelandair. Við getum því tekið sömu siglingu og fólkið sem keypti hjá Úrval Útsýn og notið félagsskapar þeirra og greitt minna fyrir ef við nennum að gera hlutina sjálf. Og drykkirnir okkar eru innifaldir….
* Hafa skal í huga að kostnaður við flug tekur örum breytingum. Sömuleiðis rokkar gengi okkar ágætu krónu eins og Elvis Presley á sterum. Ofangreind verð þó rétt kl. 10 þann 30.desember 2012.






