Fyrir aðeins þremur árum síðan gat landinn orðið sér úti um flug aðra leið til Billund í Danmörku með Primera Air fyrir 9.900 krónur með farangri og alles. Í dag eru fargjöld flugfélagsins mun dýrari og mun minna innifalið.

Nú er hægt að fljúga á misjöfnu verði með vélum Primera Air. Skjáskot
Lettneska flugfélagið er nú loks komið í sama pakka og önnur flugfélög og býður upp á þrjár mismunandi leiðir til að bóka flug eins og sést á myndinni. Þar hægt að velja flug án allra fríðinda, með nokkrum fríðindum og svo lúxuspakkann í öllum vélum flugfélagsins.
Þetta er mikið til sama prógramm og velflest flugfélög bjóða nú upp á en Primera Air hefur verið aftarlega á meri hingað til.
Við skoðun virðist helst til vel á lagt hjá Primera Air. Meðal verðmunur á ódýrasta farrými, primera light, og því næsta fyrir ofan er milli fimm og sex þúsund krónur en munurinn felst helst í því að farþegar primera comfort geta tekið með sér eina 23 kílóa tösku með umfram hina og valið sér sæti um borð. Í premium pakkanum kostar ekkert að breyta nöfnum eða dagsetningum flug auk þess sem boðið er upp á mat um borð.
Vel í lagt sannarlega. Skjámyndin hér að ofan er algengt verð fyrir flug aðra leið til Tenerife á Kanaríeyjum. 60 þúsund krónur báðar leiðir og alls ekkert innifalið er hryllilegt verð. Og hver er að greiða yfir hundrað þúsund krónur fyrir sama flug? Ef þú átt svo mikið af krónum í banka að þig munar ekkert um hundrað þúsund krónur fyrir flug eitt og sér þá ertu ekkert að skaufast á Tenerife. Þú ferð að dúlla þér í karabíska eða í skíðaskála í Chamois í Ölpunum.







