Það er ekki nóg að byrja fyrri hálfleik á dúndrandi sambabolta og gleði út í eitt einungis til að mæta í seinni hálfleik með kúk í buxum, móðir og másandi. Það virðist vera raunin hjá Wow Air.

Brosandi vélar en oft geta farþegar Wow Air ekki sagt það sama.
Einkunnavefurinn Skytrax er sá aðili sem merkastur þykir að halda einkunnagjöf fyrir flugfélög heimsins. Þar gefst manni og mús færi á að tjá sig um upplifun af flugi með hinum og þessum flugfélögum og er lesningin oftar en ekki afar forvitnileg og alveg á skjön við glimrandi auglýsingar flugfélaganna.
Skemmst er frá að segja að Skúli Mogensen og hans fólk er að missa sjónar á góðri þjónustu ef marka má Skytrax. Wow Air nú dottið niður í fimm stjörnur af tíu mögulegum eftir að hafa rokið upp sama lista upp í sjö á síðasta ári og skotið Icelandair aftur fyrir sig í fyrsta skipti frá stofnun Wow Air.
Það stutt gaman. Enn er Icelandair að hanga í sex stjörnum af tíu mögulegum meðan Wow Air virðist vera að falla niður í Iceland Express deildina. Iceland Express fyrir þá sem ekki muna, frámunalega dapurt flugfélag Pálma Haraldssonar, framsóknarmanns og svindlara með meiru, en það fyrirtæki slefaði best í þrjár stjörnur hjá Skytrax þann tíma sem það starfaði.
Algjör synd. Eins og Wow Air byrjaði með glæsibrag. En það sem fer upp…







