Alla jafna er júlí eða ágúst vænlegir mánuðir til að tryggja sér flugmiða til Kanaríeyja á sem bestu kjörum yfir háveturinn. En Wow Air Skúla Mogensen hefur séð rækilega fyrir því.

Til og frá Kanaríeyja með Wow Air og töskudrusla með kostar að lágmarki 140 þúsund krónur í vetur. Það er algjörlega galið verið hjá „lággjaldaflugfélagi“

Til og frá Kanaríeyjum með Wow Air og töskudrusla með kostar að lágmarki 140 þúsund krónur yfir jól og áramót. Það er algjörlega galið verið hjá „lággjaldaflugfélagi“

Flugfélagið býður sem kunnugt er upp á flug til Tenerife og að hluta til Kanarí yfir dimmasta veturinn enda vinsæll tími meðal frostþurrkaðra Íslendinga að komast í heitara loftslag.

Lofsvert sannarlega að bjóða kulnuðum landanum beint flug á viðráðanlegu verði vel suður um höf en mikið óskaplega er verið að féfletta þá sem hugsanlega langar að eyða jólum og áramótum nálægt miðbaug.

Þegar þetta er skrifað þarf áhugasamur Íslendingur sem vill sjóða hangiketið í kanarískum potti á jóladag að greiða litlar 120 þúsund krónur fyrir flug út fyrir jól og heim aftur rétt eftir áramót. Sá er líka að ferðast töskulaus, sem er ólíkleg staða meðal Íslendinga, svo ef við hendum með einni töskudruslu er farmiðinn út og heim með „lággjaldaflugfélaginu“ Wow Air farinn að skjaga yfir 130 þúsund krónur á mann.

Það er klink fyrir glæpamanninn og framsóknarmanninn sem á Samskip og líklega skiptimynt fyrir Panamadrenginn og framsóknarmanninn Sigmund Davíð en fyrir hina 329.465 Íslendingana flokkast það sem bullandi okur. Sérstaklega þegar haft er í huga að sé flogið snemma í desember og til baka seint í janúar fæst sama flug með sama flugfélagi niður í 43 þúsund krónur.

Það kostar sem sagt 180% meira að fljúga rétt fyrir jól og heim aftur rétt eftir áramót en að fara örlítið fyrr og heim aftur örlítið síðar. Örlítið í þessu tilfelli ein vika til eða frá.

Nú kann einhver að malda í mó og benda á að hér sé um framboð og eftirspurn að ræða. Eðlilegt sé að heimta fleiri seðla til vinsælla áfangastaða yfir annatíma en ekki.

Þrátt fyrir 120 þúsund króna fargjald er meira en nóg af lausum sætum hjá Wow Air. Skjáskot

Þrátt fyrir 120 þúsund króna fargjald er meira en nóg af lausum sætum hjá Wow Air. Skjáskot

Satt og rétt er það. Öll fyrirtæki reyna að hámarka hagnað sinn en það er þó hægt að gera innan sanngjarnra marka. Þá meinum við að flugið sem við nefnum hér til sögunnar 17. desember til 3. janúar og kostar yfir 120 þúsund krónur töskulaus er ekki hálffullt enn þegar þetta er skrifað. Vel yfir eitt hundrað sæti í 150 sæta vélinni eru laus samkvæmt bókunarvél Wow Air og sjá má hér til hliðar (grá sæti eru seld en lituð ekki).

Með öðrum orðum: þetta ákveðna flug er langt í frá uppselt en það hefur hingað til verið ástæða fargjaldahækkana hjá Wow Air.

Af þessu má ráða að Skúli Mogensen og hans fólk er fyrirfram búið að setja niður á blað hvert landinn vill halda og hvenær og fyrirfram er búið að reikna út að landinn vill til Kanarí um jólin hvað sem tautar og raular og lætur sig sennilega hafa 120 þúsund króna fargjald þó aðeins 1/3 sæta sé uppseldur. Í ágúst er sama flug væntanlega komið í 150 þúsund kallinn.

Þetta er bæði miður og óvenjulegt svo langt fram í tímann og það hjá „lággjaldaflugfélagi“ líka. Leiti fólk að Kanaríferðum hjá easyJet, Norwegian eða Ryanair er lítið mál að finna flug fram og til baka til Kanarí frá hinum ýmsu borgum Evrópu kringum 30 þúsund krónur án farangurs. Það sem sagt margborgar sig að millilenda einhvers staðar og halda áfram þaðan til Kanaríeyja yfir þennan tíma en að fljúga beint með Skúla og félögum.

Græðgin virðist alveg vera farin með herra Mogensen.