Öll eigum við ferðasögur sem bragð er að og sögurnar jafn misjafnar og fólkið er margt. Fararheill tók hús á nokkrum skemmtilegum einstaklingum með ferðabakteríuna í blóðinu og fékk þá til að deila örlítið.

Ekki nokkur skapaður hlutur að þessu. Stór hluti Ungverjalands eru skógar og lítt snortin svæði. Mynd Roland Tóth

Ekki nokkur skapaður hlutur að þessu. Stór hluti Ungverjalands eru skógar og lítt snortin svæði. Mynd Roland Tóth

Maria Edit Antal ólst upp í Karpatíufjöllum í ungverska hluta Rúmeníu en hefur undanfarin tíu ár búið og starfað á Íslandi. Þar er hún myndlistarkona, grunnskólakennari og movement medicine danskennari.

Fararheill: Dásamlegasta land sem þú hefur heimsótt og af hverju?

Maria: Ég elska Ísland, Svíþjóð og líka Rúmeníu þar sem ég er fædd. Það eru þessir þrír staðir sem mér finnst gott að vera á. Þessum stöðum er ég tengd tilfinningalega og líka tengd náttúrunni. Það er sterk náttúra á öllum þessum stöðum. Í Rúmeníu eru fjöllin eins og Esjan en þar er enginn sjór, sjórinn er í Svíþjóð. Á Íslandi höfum við bæði sjóinn og fjöllin. Ég ferðast mikið milli þessara þriggja landa og reyndar líka til Bretlands þar sem ég er að læra.

Fararheill: Besta verslunarborgin að þínu mati?

Maria: Fer ekki mikið í slíkar ferðir núna en ég gerði töluvert af því þegar ég var unglingur. Þá fannst mér mjög flott að fara til London að versla.

Fararheill: Hver er þín versta lífsreynsla erlendis?

Maria: Ég man eftir því að ég fór í tungumálaskóla í Hastings í Bretlandi þegar ég var 15 ára. Þá var ég rænd á McDonalds veitingastað og fæ enn hryllingstilfinningu þegar ég hugsa um það. Svo var ég rænd líka í Búdapest. Það er alltaf verið að ræna mig. En ég hef aldrei lent í neinni hættu. Missti reyndar einu sinni af flugvél frá Bretlandi og það var ekki gaman. Þá hljóp ég marga kílómetra með þungan bakpoka en var of sein í flugið.

Fararheill: Hvaða erlendu staðir hafa komið þér mest á óvart?

Maria: Mér finnst staðir næstum alltaf koma mér á óvart. Ég bý mér kannski fyrirfram til einhverja mynd af staðnum sem er svo allt öðruvísi en raunveruleikinn. En mér finnst alltaf gaman að uppgötva. Fara inn í samfélagið og virkilega finna hvar ég er. Mér finnst skemmtilegast að vera ekki á hóteli eða við einhvern sundlaugarbakka heldur virkilega finna hvert ég er komin tilfinningalega og menningarlega. Það er t.d gott að gista á bóndabæjum úti í sveit og vera nálægt menningunni og fólkinu í landinu. Svoleiðis hef ég ferðast síðustu tíu árin og það er bara eitthvað sem hefur þróast hjá mér.

Fararheill: Eitt það mikilvægasta að hafa í huga á ferðalögum er…?

Maria: Það er mín reynsla að ég fæ dýpri tilfinningu fyrir því hvert ég er komin ef ég næ að tengjast náttúrunni og fólkinu á staðnum. Það er mín ráðlegging. Að kanna, skoða og henda sér út í eitthvað sem maður þekkir ekki og sjá hvað gerist!

Finna má frekari upplýsingar um Mariu og hennar áhugamál á vef hennar hér.