Við vorum algjörlega kjaftstopp yfir frétt þess efnis að hagsmunaaðila í ferðabransanum finndist fólk nú skrýtið og undarlegt fyrir að reyna að verða sér úti um miða með krókaleiðum á landsleiki Íslands á yfirstandandi EM í Frakklandi og sendum viðkomandi tóninn. En í ljós kemur að það er fréttastofa RÚV sem er í ruglinu.

Samhengislaus frétt vakti hörð viðbrögð frá okkur en reiðin á rangan stað.

Samhengislaus frétt vakti hörð viðbrögð frá okkur en reiðin á rangan stað.

Við sendum sterka pillu vegna þessa enda aldeilis fráleitt að dissa stuðningsfólk landsliðsins sem vildi sýna stuðning í verki á pöllunum og gerði það með svo eftirminnilegum hætti að stuðningsmenn annarra stórþjóða apa nú eftir hver sem betur getur.

Ímyndum okkur eitt augnablik að einungis 3.500 Íslendingar hafi verið í stúkunni á landsleik Íslands og Englands um daginn. Það var opinber miðafjöldi sem skammtaður var Íslendingum og átti að vera sá fjöldi miða sem landinn gat keypt „löglega.“

En lögreglumaður einn sem við þekkjum til og hefur á stundum þann starfa hérlendis að áætla fjöldatölur í miðbænum sagði varlega áætlað miðað við myndir úr sjónvarpi að Íslendingar á þeim fræga leik hafi ekki verið færri en tólf þúsund talsins og sennilega fleiri. Sé það rétt hafa níu þúsund Íslendingar brotið lög í Nice og ættu auðvitað að fá tiltal, sekt og fangelsisdóm með ef Knattspyrnusamband Evrópu fengi einhverju ráðið.

En leiða má líkur að því að einmitt þessi líklega fjöldi hafi gefið landsliðsmönnum okkar byr í seglin í frægum sigri gegn Englandi. Fullyrða má að engir þrjú þúsund aðdáendur hefðu getað búið til „blátt haf“ í stúkunni eða yfirgnæft hina 32 þúsund áhorfendur á vellinum með söng og gleði meðan leikurinn stóð yfir.

Raunin virðist þó vera sú að fréttamaður RÚV notaði samhengislaus komment til að ota sinni frétt af málinu og því ekki rétt að forstöðumaður Gaman ferða hafi verið að gera lítið úr þeim stuðningsmönnum sem kusu að „brjóta lög“ til að styðja sitt fólk ytra.

Ekki í fyrsta sinn sem fréttamenn RÚV hundsa algjörlega byrjunarreglur í blaðamennsku.