Útsölur eru jafnan skemmtilegar fyrir alla þá sem ekki eru ævimeðlimir í Sjálfstæðisflokknum og láta sérsníða á sig sokka og buff og setja upphafsstafina sína á jakkaboðunginn ef því er að skipta. Það á ekki síst við um útsölur lággjaldaflugfélagsins easyJet.

Ódýrt út í haust og vetur? Þá er tækifærið núna.Mynd Clement Alloione
Jamms. EasyJet er að henda út 20 prósenta afsláttarkjörum ofan á fremur lágt verð sitt á flugferðum almennt þessi dægrin og gildir um ferðir frá ágústlokum og fram að jólum.
Þar hægt að gera feit kaup ef einhver þarna úti er eins og ritstjórn Fararheill og vill sjá til sólar og helst finna smá hita á kropp í nóvember og desember. Kaup á borð við flug aðra leið til Kanaríeyja niður í tólf þúsund krónur án farangurs, kaup á borð við flug til Bari á Ítalíu frá Íslandi undir fimmtán þúsund krónum og svo má lengi áfram telja.
Vitaskuld þurfa áhugasamir að púsla smá til að finna lægstu verð á hverri flugleið fyrir sig og auðvitað kostar sitt að fylla töskudruslu af nærum og klæðum öðrum. Samt sem áður töluvert lægra verð til ljúfra áfangstaða en við eigum að venjast ef fólk setur ekki fyrir sig að millilenda einu sinni eða svo.







