Sumarið 2016 er án nokkurs vafa það sumar sem okkur Íslendingum buðust hvað vænlegust kjör á sólarlandaferðum. Aldrei áður hafa jafn ódýrar ferðir boðist og þetta sumarið þó enn vanti aðeins upp á að við njótum sömu kjara og aðrar Evrópuþjóðir.

Bjóðum fín afsláttarkjör en heimtum að fólk fari krókaleiðir. Skjáskot
Ekki er blaði flett né sjónvarp séð þessi dægrin án þess að sjá ferðaskrifstofurnar bjóða súperkjör beint í sólina við Miðjarðarhafið. Kostnaðurinn stiglækkandi ár frá ári sem er eðlilegt enda landinn hingað til þurft að greiða 40 til 100 prósent meira fyrir slíkar ferðir en með ferðaskrifstofum almennt í Evrópu.
Sumar ferðaskrifstofstofur beita þó bellibrögðum til að næla sér í aðeins fleiri seðla en ella. Lesendum vorum kemur ekki á óvart að þar er Úrval Útsýn fremst í flokki.
Til að næla í allra bestu tilboðin þessarar ferðaskrifstofu glæpamannsins Pálma Haraldssonar þarf fólk að muna að setja sérstakan „bókunarkóða“ í þartilgert box þegar ferð er bókuð. Ella greiðir fólk töluvert hærra verð fyrir herlegheitin.
Bókunarkóðinn ekkert leyndarmál og Úrval Útsýn tekur það fram í auglýsingum að þess þurfi til að njóta bestu kjara. Spurningin vaknar samt hvers vegna bókunarkóði? Hvers vegna að fara krókaleið að bestu kjörum? Hvað með þá sem bóka en gleyma að setja „bókunarkóðann“ í reitinn atarna? Eiga þeir rétt á endurgreiðslu ef þeir fatta það eftir að bókun er gerð?
Tómt rugl hjá háskólamenntuðum markaðsfræðingum ÚÚ. Ef gefa á afslátt á annað borð verið ekki að flækja málin út í hið óendanlega. Afsláttur á að bætast sjálfkrafa ofan á ferð sem auglýst er á sérkjörum. Annað er bara prump. Sem reyndar er í stíl við eigandann en samt.







