Eitthvað alvarlegt hefur gerst hjá Icelandair. Viðskiptavinir flugfélagsins sem flug eiga frá Billund og til Billund 11. september eru þegar orðnir 57 þúsund krónum ríkari því miklar tafir verða á þessum ferðum.

Tæplega 60 þúsund krónur í vasa þeirra sem flug eiga til eða frá Billund með Icelandair.

Tæplega 60 þúsund krónur í vasa þeirra sem flug eiga til eða frá Billund með Icelandair.

Um tafir má lesa á vef Icelandair og sjá á vef Keflavíkurflugvallar. Flug Icelandair frá Keflavík tefst um níu klukkustundir og flugferð félagsins til baka frá Billund tefst um rúmlega átta klukkustundir. Með tilliti til langrar tafar og lengdar flugs eiga allir farþegar í báðum ferðum inni 57 þúsund krónur hjá flugfélaginu samkvæmt Evrópureglum. Það ágæt sárabót og fer örugglega langleiðina með að greiða ferðina að fullu.

Það þarf þó að sækja sitt. Icelandair er ekki að hagnast um hundruð milljóna árlega vegna þess að flugfélagið er svo lipurt gagnvart farþegum sem verða fyrir töfum. Henda þarf inn kröfu á borð Samgöngustofu sem tekur málið til meðferðar og í þessu tilfelli liggur allt ljóst fyrir.

Icelandair er reyndar ekkert að eyða púðri í útskýringar. Á vef flugfélagsins segir aðeins að flug til Billund og frá tefjist og farþegar beðnir velvirðingar. Ekkert minnst á bætur eða neitt sem máli getur skipt.

Meðan þú bíður geturðu gengið úr skugga um að við séum ekkert að plata þig þegar við höldum því fram að hótelbókunarvefur okkar bjóði mest og best alls staðar alla daga 🙂