Við greindum lesendum okkar frá mikilli óánægju fjölskyldu einnar með dýra ferð ferðaskrifstofunnar Nazar til Tyrklands fyrir skömmu. Það eru þó fleiri þarna úti sem ekki eru á eitt sáttir.

Hið gríðarstóra Pegasos World á Tyrklandi. Ekki allir sáttir við dvöl þar.

Hið gríðarstóra Pegasos World á Tyrklandi. Ekki allir sáttir við dvöl þar.

Tyrklandsferðir Nazar hafa notið vinsælda hérlendis síðustu misserin. Beint flug, barnvæn hótel og margt innifalið í flestum þeirra ferðum. Plús að bjóða okkur Frónbúum aðeins meira úrval sólarstaða en Benídorm, Alicante og Mallorca.

En paradís er ekki vandræðalaus ef marka má umsögn annars aðila um ferð þar sem gist var á hótelinu Pegasos World eins og lesa má um hér að neðan.

Við skrifum þessa grein til vekja athygli á því hve mismunandi það er hvað er innifalið í tilboði ferðaskrifstofanna „Allt innifalið“. Reynsla okkar af því er mjög misvísandi. Við fórum til Tenerife í fyrra með Ferðaskrifstofunni Heimsferðum. Það var yndisleg ferð sem uppfyllti allar væntingar okkar og tveggja sona okkar sem eru 12 og 14 ára gamlir. Nú féllum við fyrir tilboði frá ferðaskrifstofunni Nazar til Tyrklands, þar sem allt var sagt innifalið og aldrei þyrfti að taka upp veskið. Til að vera viss um að svo væri og að ganga úr skugga um að hægt væri að uppfylla óskir sona okkar um köfun og fjórhjólaferð töluðum við mikið við starfsfólk ferðaskrifstofunnar hér heima. Við vorum fullvissuð um að svo væri, meðal annars vegna köfunarskírteina drengjanna frá Tenerife og hægt væri að fá undanþágu frá 14 ára aldurstakmarki. Því slógum við til á endanum og keyptum ferðina, sem reyndar var ansi dýr. Við gistum á Pegasos World í fjölskyldusvítu með svölum, þar sem allt átti að verra í hæsta gæðaflokki.

Strax og komið var út kom í ljós að fátt af því sem fullyrt var að stæði okkur til boða var fyrir hendi. Ferðaskrifstofan gat hvorki boðið upp á köfun né fjórhjólaferð fyrir drengina, né vildi greiða götu okkar í þeim efnum. Okkur tókst að lokum að finna slíkar ferðir fyrir þá án aðstoðar fararstjóra Nazar á staðnum.
Og hvað varðaði allt innifalið og veskið alltaf í vasanum, stóðst það engan veginn. Ísinn sem var innifalinn var lítilfjörlegur og þurfti að fara nokkurn spöl frá hótelinu til að sækja hann. Flottan ís var hægt að fá við sundlaugina og sjálfsögðu með veskið á lofti. Í morgunmatnum fékkst hvorki gæða kaffi né nýkreistur ávaxtasafi nema að taka upp veskið. Rándýrt var í öll leiktæki á hótelinu. Viðmót fararstjóra Nazar á staðnum var ekki gott og vilji til að bæta úr því, sem lofað hafði verið og ekki staðið við, lítill sem enginn. Ýmislegt fleira var að eins og biluð loftkæling og við vorum ekki vöruð við biti af moskítóflugum, sem hægt hefði verið að forðast að mestu með einföldu tæki í íbúðinni.

Fríu drykkirnir á barnum voru bornir fram í pappa- eða plastglösum og í svokölluðum kokteilum, sem hvorki voru hristir né hrærðir var vatnsblandaður ávaxtasafi, enginn alvöru djús. Reyndar kom fram hjá fararstjóranum að allt innifalið væri miðað við tyrkneskan mælikvarða, hvað sem það á svo að merkja.

Reynsla okkar af ferðinni er því slæm og við getum ekki mælt með ferðaskrifstofu sem tekur á þennan hátt á málum. Að mála allt gylltum litum þegar ferðin er keypt, en ekkert stenst þegar út er komið og eðlilegum umkvörtunum mætt með hroka og jafnvel fyrirlitningu. Niðurstaðan er sú að okkur var seld ferðin á röngum forsendum. Hefðum við fengið fullnægjandi og réttar upplýsingar hér heima hefðum við ekki keypt ferðina. Við vorum lokkuð til þess með gylliboðum, sem ekki stóðust. Við getum því ekki mælt með viðskiptum við ferðaskrifstofu sem er ekki vandari að virðingu sinni en Nazar. Ferðin var að miklu leyti eyðilögð fyrir okkur og því sem bjargað varð sáum við um sjálf án nokkurrar aðstoðar fararstjóra. Okkur er kunnugt um fleiri aðila í sömu ferð sem voru óánægðir með þjónustu fararstjóra á staðnum og efndir ferðaskrifstofunnar á því sem sagt var að væri í boði.

Við teljum okkur hafa verið svikin og leituðum réttar okkar hjá ferðaskrifstofunni, sem hafnaði því algjörlega að bæta okkur skaðann á einhvern hátt. Í svari hennar er talað um misskilning, en ef einhvers misskilningur hefur hann verið í gangi hefur hann verið milli stafsmanna ferðaskrifstofunnar, sem leiddi til þess að við fengum rangar upplýsingar í upphafi og enga leiðréttingu þegar á staðinn var komið. „Okkur þykir miður að þið eruð ekki sátt með sumarfríið, en þó var ekkert sem sem var að og því sjáum við ekki ástæðu til að greiða neinar skaðabætur,“ segir í svari ferðaskrifstofunnar. Þeim finnst greinilega ekkert að því að eyðileggja frí viðskiptavinna sinna. Við erum ekki á sama máli.

Við gerum því ekki ráð fyrir neinum bótum, en skrifum þessa grein til að vekja athygli fólks á því falla ekki fyrir gylliboðum Nazar um „allt innifalið“. Við fengum misvísandi og rangar upplýsingar um það sem til boða stóð áður en ferðin var endanlega keypt. Við hvetjum alla sem ætla að nýta sér tilboð af þessu tagi að kanna það vandlega hvað í raun er í boði og hvaða mælikvarði er í raun lagður á hugtakið „Allt innifalið“. Í okkar tilfelli vantaði mikið upp á að það stæðist þann skilning, sem við höldum að flestir Íslendingar hljóti að leggja í hugtakið.

Það er við því að búast að stöku aðilar séu óánægðir með allt alltaf í pakkaferðum. En einhvern veginn er þetta ekki slíkur aðili. Þvert á móti er ekki verið að fara fram á neinar bætur eða neitt slíkt. Aðeins verið að benda öðrum á að ekki er kannski alltaf að marka fögur orð. Sem er reyndar gömul saga og ný.