Fyrir nokkru setti ferðaskrifstofan Gaman ferðir í sölu túr til London á tónleika hjá hinum sívinsælu ellirokkurum U2. Þar um að ræða þriggja daga ferð; flug, hótel og miða á tónleikana fyrir tvo á 329.800 krónur. Það er um 200 þúsund krónum dýrara en ef þú gerir og græjar þína eigin ferð.

Það er aðeins önnur, og sumir segja betri, stemmning á U2 tónleikum í heimalandinu en annars staðar. Mynd Shadein

Það er aðeins önnur, og sumir segja betri, stemmning á U2 tónleikum í heimalandinu en annars staðar. Mynd Shadein

Stórsveitin er að þvælast um Evrópu fyrri hluta vetrar og tilkynnt var fyrr í vikunni að sex tónleikar færu fram á eyjunni grænu sem ýmist kallast Írland eða Norður Írland. Tvennir tónleikar í Belfast, 18. og 19. nóvember, og fernir í Dublin, 23. til 28.nóvember.

Það yndislega við þessar tvær borgir er tvennt. Þangað komumst við í beinu flugi með lággjaldaflugfélögum og þangað er örstutt að fljúga. Við leit á vef easyJet sem flýgur beint héðan til Belfast kemur í ljós að komist er þangað yfir tónleikana fyrir lægst 26.996 krónur fram og aftur án farangurs. Á vef Wow Air, sem flýgur beint til Dublin, fundust fargjöld fram og aftur á manninn tónleikadagana niður í 34.998. Og hver þarf svo sem farangur á U2 tónleika?

Á hótelvef okkar finnst töluvert af ágætum þriggja stjörnu hótelum í fjórar nætur í báðum borgum niður í 45 til 50 þúsund krónur samtals eða 23 þúsund kall á kjaft miðað við tvo saman.

Miðar á tónleikana fara í sölu á mánudag í næstu viku, 14. september, og fást í ýmsum verðflokkum. Ódýrustu miðar í Belfast kosta sjö þúsund krónur en fjögur þúsund krónur í Dublin. En auðvitað má fá almennileg sæti fyrir hærra verð en það. Dýrasti miðinn í Dublin kostar um 50 þúsund krónur.

Ef við svo drögum þetta allt saman í einn pakka kostar fjögurra daga tónleikatúrinn til Belfast 56 þúsund krónur á mann miðað við tvo eða 64 þúsund krónur í Dublin á mann miðað við tvo saman.

Það er bara klink fyrir súpergóða tónleika í hreint ansi skemmtilegum borgum eins og lesa má um hér og hér. Svo má ekki gleyma miðunum sem fara í sölu á netinu hér. Hafðu hraðann á samt. Miðar á U2 í heimalandinu eru eftirsóttir 😉