Svo virðist sem fréttatilkynningar séu orðnar heilagur sannleikur hjá íslenskum fjölmiðlum. Þú veist, þessum aðilum sem stundum eru kallaðir fjórða valdið og eiga að kafa til botns í málum fyrir okkar hönd.

Það er gaman þegar fyrirtæki geta sent út tilkynningar sem birtast beint sem fréttir hjá helstu miðlum landsins. Mynd Wow Air

Það er gaman þegar fyrirtæki geta sent út tilkynningar sem birtast beint sem fréttir hjá helstu miðlum landsins. Mynd Wow Air

Minnst þrír stórir fjölmiðlar birta í dag óbreytta fréttatilkynningu frá Wow Air þess efnis að flugfélagið hafi orsakað 30% almenna lækkun flugfargjalda milli Keflavíkur og Boston síðan Wow Air hóf beint flug þangað síðasta vetur.

Það er tiltölulega auðvelt við fyrstu sýn að fallast á að það geti staðist. Icelandair var eitt um hituna áður fyrr og það liggur í hlutarins eðli að öll alvöru samkeppni þrýstir verði á vöru eða þjónustu niður. Kannanir hérlendis hafa leitt í ljós að verðlækkun verður hjá Icelandair þegar annar aðili kemur inn á markað sem þeir áttu einir áður. Sömuleiðis hafa erlendar kannanir sýnt það sama á erlendum mörkuðum. Þarf reyndar engar kannanir til. Heilbrigð skynsemi skilar sömu niðurstöðu. Ef markaðurinn er ekki að öðru leyti bjagaður á samkeppni alltaf að koma neytendum til góða í lægri gjöldum eða verði.

En er þetta satt og rétt? Enginn fjölmiðill hefur fyrir að kanna hvaðan þessar upplýsingar koma og hvort staðhæfingin stenst. Nei, því bara fleygt fram í fyrirsögn að Wow Air hafi nú aldeilis lækkað verð á flugi til Boston. Minna gáfað fólk tekur það sem heilögum sannleik.

Við fórum þess á leit við Wow Air að fá einhver gögn sem staðfesta þessa yfirlýsingu en fengum ekki. Ekkert slíkt liggur á lausu. Upplýsingafulltrúi flugfélagsins segir þetta niðurstöðu úr gagnagrunnum sem flugfélagið hefur aðgang að. Engar upplýsingar við hvað er miðað. Er þetta flug án farangurs? Flug aðra leið eða báðar?

Við höfum sem sagt bara orð Wow Air fyrir að Wow Air hafi nú aldeilis komið okkur til góða til og frá Boston. Hmmm. Eins og við Íslendingar höfum nú góða reynslu af því að trúa fyrirtækjum. Samanber hvað ekkert alvarlegt var að hjá bönkunum 27. september 2008.

Nú ætlum við ekki að fullyrða að Wow Air fari með rangt mál eða ýki staðreyndir. Við höfum ekki aðgang að flottum gagnagrunnum til að ganga úr skugga um það. Enginn vafi leikur á að Wow Air er stundum að bjóða afar lág fargjöld þessa leið og skrýtið væri ef tilkoma þeirra á markaðinn til Boston hefði ekki haft einhver áhrif til lækkunar hjá Icelandair.

En 30 prósent lækkun almennt er dálítið há tala. Við höfum hins vegar fimm ár af greinum á Fararheill og þar á meðal talsvert af verðkönnunum sem við höfum gert. Við vitum að gróft meðalverð á flugi fram og aftur til Boston með Icelandair haustið 2013 var milli 65 til 70 þúsund krónur. Þar um almennings farrými að ræða. Lægsta verð hjá Icelandair það árið til Boston var á svokölluðu hraðtilboði þegar verð báðar leiðir fór niður í 50 þúsund krónur rúmar. Þrjátíu prósent af 70 þúsund krónum er 21 þúsund krónur. Sem merkir að fargjöld ættu almennt að hafa lækkað niður undir 50 þúsund krónur að meðaltali hjá Icelandair ef fargjöld almennt hafa lækkað svo skarpt sem Wow Air heldur fram.

Hafðu ofangreint í huga þegar þú skoðar tvær töflur frá þessu ári. Fyrst skoðum við flug til Boston AÐRA LEIÐ í könnun sem við gerðum þann 18. febrúar 2015.

Til samanburðar skulum við skoða könnun sem við gerðum í maímánuði en hér um báðar leiðir að ræða. Athugið að hér er um allra lægstu fargjöld að ræða.

Þó þetta segi kannski ekki alla söguna er fátt að sjá sem gefur til kynna að fargjöld til Boston hafi lækkað um 30 prósent frá því Wow Air hóf að fljúga þangað. Nema meðalfargjaldið áður hafi skjagað í hundrað þúsund krónur báðar leiðir. Sem við vitum að var ekki raunin.