Tíðindi

„Ótrúlegt“ sértilboð Heimsferða

  29/04/2009maí 11th, 2014No Comments

Netklúbbur Heimsferða auglýsir nú síðustu sætin í tólf daga ferð til Benalmadena á Costa del Sol þann 21.maí sem „ótrúlegt“ sértilboð.

Er þá verið að vísa í verðið sem er 99.900 á mann miðað við fjölskyldu með tvö börn á aldrinum 2-11 ára á hálfu fæði. Sé um hjón eða par að ræða greiðist 119.900 á mann. Gist er á þriggja stjörnu Los Patos hótelinu sem fær ágæta dóma.

Þar sem aðeins 40% landsmanna eiga börn á tilskyldum aldri er nær lagi að skoða tilboðið gagnrýnum augum með tilliti til tveggja einstaklinga, pars eða hjóna. Athugun Fararheill leiðir í ljós að hægt er að panta gistingu á sama tíma með hálfu fæði beint af netsíðu hótelsins og kostar þá tveggja manna herbergi 872 evrur. Miðað við gengi dagsins (29.apríl) gera það 147.527 krónur. Deilt í tvo kostar gisting á mann því 73.763 krónur.

Gamanið kárnar heldur þegar kemur að fluginu enda ekkert flugfélag eða ferðaskrifstofa önnur sem býður flugferðir til Malaga beint svo allur samanburður er nánast vonlaus. Óhætt er hins vegar að fullyrða að 46.137 krónur fyrir leiguflugið er í dýrari kantinum. Bestu verðin til Alicante héðan með áætlunarflugi fengust fyrr í vor á 36 þúsund krónur fram og tilbaka.

Niðurstaðan er að „ótrúlegt“ sértilboð Heimsferða nær ekki að standa undir nafni að mati ritstjórnar Fararheill.is