Dagatalið

Corsa dei Ceri

  30/04/2009maí 11th, 2014No Comments

Þó Umbría héraðið á Ítalíu verði sennilega seint meðal helstu áfangastaða Íslendinga í maí mánuði fer þar fram viðburður ár hvert sem ber nafnið Corsa dei Ceri á móðurmálinu og þykir með merkilegri viðburðum að fylgjast með.

Er þetta grimmileg keppni þriggja 20 manna liða frá mismunandi stöðum í héraðinu hver þeirra er fyrstur með þrjár stórar viðarstyttur, hver um sig ein 400 kíló, frá borginni Gubbíó upp fjallið Monte Inigo alla leið að dómkirkju sem þar stendur.

Viðarstytturnar tákna þrjá helstu verndara frá Umbría. Heilagan Ubaldo, verndara Gubbíó, heilagan Gíorgío verndara sjómanna og heilagan Antóníó verndara bænda. Er niðurstaðan reyndar fyrirfram ákveðin því tákn Ubaldo sigrar ávallt að lokum en andstæðingarnir setja þó mikla pressu og þúsundir gesta koma til að fylgjast með herlegheitunun ár hvert.

Heimasíðan hér.