Heilt yfir er Holland dýrt land að heimsækja fyrir krónueigendur og þá hótelin í vinsælli borgum oft sérstaklega þung á pyngjunni. En fljótlega má búast við að verðlag þar í landi hækki aðeins meira.

Rólegt í Rotterdam. Lágmarkslaun hækkuðu nýverið í Hollandi og fregnir berast af því að þjónusta sé að hækka í kjölfarið. Mynd Richard Richter

Rólegt í Rotterdam. Lágmarkslaun hækkuðu nýverið í Hollandi og fregnir berast af því að þjónusta sé að hækka í kjölfarið. Mynd Richard Richter

Þar, eins og hér, fara velflestar hækkanir til handa almenningi beint aftur út í verðlagið. Það gildir ekki síst um hækkanir til þeirra sem lægst hafa launin og vinna gjarnan þau störf sem ómerkilegust þykja. Eins og til dæmis fólkið sem þrífur hótelherbergið þitt eða fólkið sem reiðir fram morgunmatinn á sama hóteli.

Það fólk var nefninlega að fá launahækkun 1. júlí síðastliðinn þegar lögbundin lágmarkslaun í Hollandi hækkuðu. Nú skulu opinber lágmarkslaun vera rúmar 222 þúsund krónur á mánuði miðað við gengi evru gagnvart krónu þegar þetta er skrifað. Líklegt má telja að gisting þar í landi muni hækka lítillega fljótlega.