Tvö hryðjuverk og ferðamannaiðnaðurinn í Túnis er í lamasessi. Svo mikil fækkun hefur orðið á örskömmum tíma að nú er 50% til 60% afsláttur normið á ferðum til landsins sem og gistingu á toppstöðum.

Ferðamenn nánast horfnir frá Túnis og allt nánast komið á útsölu. Mynd Andrew Tijou
Eftir hryðjuverkin í borginni Sousse í lok júní hefur skipulögðum ferðum evrópskra ferðaskrifstofa til landsins fækkað um rúman helming að því er fram kemur í tölum ferðamálaráðs landsins. Það þungur hamar fyrir fátækt land þar sem ferðaþjónusta skarar árlega um 18 prósent að þjóðarkökunni.
Stjórnvöld hafa þegar lagt drög að því að byggja mikinn og stóran múr á landamærum sínum við Líbíu, þaðan sem talið er líklegt að hryðjuverkamenn komi helst. Það er kjánaleg peningaeyðsla. Það er ekki eins og hér sé um að ræða einhverja stöku geðbilaða ofbeldismenn heldur talið víst að íslamska ríkið sé að baki þeim tveimur árásum sem þegar hafa verið gerðar. Enginn múr stoppar slíka hópa lengi.
Fyrir vikið má líka gista á fjögurra og jafnvel fimm stjörnu hótelum niður í 3.500 kall og skella sér í þær ferðir sem enn eru í boði til Túnis á helmings afslætti. Sennilega vænlegra þó að greiða meira, fara annað og koma heil heim.







