Það er hætta á að helgarferðin þín til London eða vikutúrinn um Skotland verði töluvert dýrari en þú hafðir áætlað. Breska pundið hefur ekki verið sterkara gagnvart íslenskri krónu síðan við Hrunið.

Pund gegn Krónu. Sú íslenska er að gefa mikið eftir. Skjáskot
Við lok markaða á föstudaginn var mældist miðgengi pundsins gegn hinni íslensku krónu vera rúmar 212 krónur. Pundið hefur ekki verið sterkara en það síðan í nóvember 2008 þegar hvert pund kostaði landann 219 krónur. Hvergi er að finna staf um þetta í íslenskum fjölmiðlum eftir því sem Fararheill kemst næst.
Þetta er nokkuð merkilegt í ljósi þess að eftir að landið tók að rísa á ný eftir Hrunið hefur breska pundið haldist sæmilega stöðugt og eitt pund kostað milli 180 til 200 krónur að meðaltali frá árinu 2010. Það er öllu meiri uppgangur í landinu nú en árið 2012 svo dæmi sé tekið og því ætti krónan okkar að styrkjast.
Ekki svo. Bæði pundið og reyndar dollarinn hækka smátt og smátt gagnvart krónu sem auðvitað þýðir stóraukinn kostnað við ferðir til Bandaríkjanna og Bretlands en stórlækkaðan kostnað á móti fyrir alla þá sem langar að heimsækja Ísland frá sömu löndum.
Á mannamáli merkir þetta að máltíð á veitingastað í London sem kostaði 60 pund um miðjan júlí fyrir ári síðan kostaði þig þá 11.640 krónur. Sama máltíð á sama verði í dag kostar þig hins vegar 12.720. Rúmlega þúsund krónum dýrari.
Ágætt að hafa í huga og kannski beina athyglinni fremur að Evrópuferðum annað en til Bretlands til að drýgja litlu krónuna. Evran hefur jú lækkað skarpt miðað við krónu undanfarna mánuði af augljósum ástæðum.







