Tíðindi

Ólympíuleikarnir í London algjört flopp?

  10/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Það blæs ekki byrlega hjá Bretanum. Allt í kaldakoli í efnahagsmálum landsins, glæpir á uppleið og sífellt fleira bendir til að tugmilljarða fjárfesting þeirra vegna Ólympíuleikanna í sumar muni ekki skila sér.

Fararheill hefur áður greint frá fregnum þess efnis að hótelbókanir í höfuðborginni séu vel undir meðallagi það sem af er fyrir sumarið sem vakið hefur ótta hjá ferðaþjónustuaðilum og ekki síður stjórnvöldum enda gríðarleg fjárfesting bundin við Ólympíuleikanna og ekki leiðum að líkjast eftir að Kínverjar toppuðu þann viðburð fyrir fjórum árum síðan.

Nú skýrir einn stærsti ferðaþjónustuaðili heims, TUI, frá því að bókanir til London næsta sumar séu ellefu prósentum undir meðaltalinu og bæta því enn lóðum á vogarskálar þeirra sem telja Ólympíuleikana verða algjöran myllustein um háls borgaryfirvalda í London. Við skulum jú ekki gleyma að Aþena, sem þó fjárfesti ekki jafn mikið í sínum Ólympíuleikum 2004, hefur aldrei borið sitt barr fjárhagslega síðan.

Ritstjórn hefur lengi haft þá skoðun að það séu mistök hjá íslenskum ferðaþjónustuaðilum að leggja áherslu á London þetta sumarið. London er í dýrari kantinum fyrir þorra Íslendinga og verður enn dýrari þetta sumarið. Söfn og áhugaverðir staðir verða líklega enn þéttsetnari nú en áður, umferðin enn verri og mengun sömuleiðis. Veitingahús smyrja ofan á verð sín og hæpið að samgöngukerfi borgarinnar ráði við aukinn fjölda.

Nær lagi er að skoða London á næsta ári og njóta Ólympíuleikanna í flatskjánum okkar þetta sumarið.