Tíðindi

Bókunargjöld hækka jafnt og þétt

  10/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Vei þeim einstaklingi sem ekki kærir sig um að brúka kreditkort. Langi þá manneskju að fara með fjögurra manna fjölskyldu sína erlendis og nota til þess innlendar ferðaskrifstofur eða flugfélög þarf sá að greiða tæplega sextán þúsund krónur aukalega umfram kortanotendur.

Þau eru mörg gjöldin sem teljast verða séríslensk og landinn pungar út nær möglunarlaust. Þrátt fyrir nokkuð ítarlega leit ritstjórnar Fararheill í nágrannalöndum finnast ekki margir ferðaþjónustuaðilar annars staðar sem krefjast sérstaks gjalds fyrir að hitta viðskiptavini sína persónulega á söluskrifstofum.

Samkvæmt úttekt Fararheill leggja velflestir ferðaþjónustuaðilar hér á landi sérstakt bókunargjald á öll persónuleg viðskipti sem að mati ritstjórnar stríðir gegn allri heilbrigðri skynsemi. Hvert það fyrirtæki sem ekki vill samskipti við viðskiptavini sína er á rangri leið. Bókunargjald þetta á að greiða þann tíma sem starfsmaður á skrifstofu þarf að eyða til að bóka fargjald eða ferð fyrir einstakling eða fjölskyldu.

Nema gjaldið er ansi drjúgt. Þannig taka til að mynda ferðaskrifstofurnar Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir 3.900 krónur fyrir hverja einustu bókun á skrifstofum sínum eða gegnum síma. Fjögurra manna fjölskyldan greiðir þannig 15.600 krónur fyrir þjónustu sem kannski tekur vanan starfsmann kringum tíu mínútur af afgreiða í hæsta lagi. 3.900 krónur er meðal annars tímagjaldið hjá færum lögmanni.

Töluvert ódýrara er að eiga slík viðskipti við aðra. Icelandair tekur 3.000 krónur fyrir herlegheitin, Vitaferðir 2.400 krónur og sömuleiðis Heimsferðir. Hjá Iceland Express er gjaldið 1.500 krónur.

Hafa Neytendasamtökin ítrekað gagnrýnt þetta framferði ferðaþjónustuaðila hérlendis og bent á að þetta tíðkist óvíða annars staðar í sama geira. Enda felist það í þeirri þjónustu að selja ferðir að taka við bókunum og selja viðkomandi þjónustu.