Tíðindi

NYT mælir með Havana

  08/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Það kann að brjóta lítil íslensk hjörtu sem alltaf missa sig þegar erlent þungavigtarfólk minnist á klakann en ferðamálafrömuðum bandaríska dagblaðsins New York Times finnst ekki mikið til Íslands koma sem eðalfíns áfangastaðar á árinu 2012. Allavega ekki nóg til að komast á topp 45.

Hefur blaðið birt sína topp 45 áfangastaði næsta árs og er þar líklega að reyna að toppa alla aðra sem svipaða lista birta. Venjan er að mæla með 5, 10 eða mögulega 20 stöðum en NYT toppar það með 45 áfangastöðum.

En það er ekki skortur á Íslandi á listanum sem vekur spurningar um geðheilsu blaðamanna NYT heldur sú staðreynd að meðal þeirra staða sem þeir mæla með á árinu er himingeimurinn annars vegar og Suðurskautið hins vegar. Nema þeir séu aðeins að skrifa lista sinn fyrir það eitt prósent Bandaríkjamanna sem alla peninga eiga í landinu.

Þess utan vekur athygli að NYT mælir með ferðalagi til Havana á Kúbu en það mun vera í fyrsta skipti nokkru sinni sem þetta heimsþekkta dagblað mælir með heimsókn til kommúnistaríkisins.

Það stafar sennilega af því að reglur þar að lútandi hafa verið rýmkaðar og komast nú mun fleiri bandarískir þegnar til Kúbu en áður. Þó ekki til að liggja á ströndum og drekka framandi drykki eins og aðrir útlendingar því reglur kveða á um að bandarískir ríkisborgarar verði að eiga sérstakt erindi til landsins til að fá áritun kúbverskra yfirvalda.