Lággjaldarisarnir Norwegian og easyJet auglýsa nú útsölur á ferðum sínum og ráð að grípa gæs, eða miða, og spara skilding viti fólk upp á hár hvert för er heitið.
Bæði flugfélög hefja flug til og frá Íslandi með vorinu og ætli Íslendingar sér að brúka annað hvort flugfélag til að komast lengra en til Osló eða Luton er þetta kjörið tækifæri til að negla farið.
Útsala Norwegian er í gangi til 16. janúar og gildir um flugferðir til ýmissa áfangastaða alveg fram til 30. september meðan útsala easyJet er aðeins til miðnættis 10. janúar. Gildir útsöluverð breska flugfélagsins um ferðir fram til 11. júlí. Fjölmörg önnur flugfélög heims eru með sérstaka afslætti á ferðum sínum.
Þannig er hægt að verða sér úti um eðalfrí á lágmarksverði ef menn hafa snöggar hendur og kannski segir sitt að hvorki Icelandair né Iceland Express hafa enn auglýst neitt í líkingu við útsölu. Enda líka fákeppni á Fróni.






