Tíðindi

Dýrustu borgir heims í Noregi og Sviss

  08/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Eitt sinn fyrir ekki svo langa löngu komst Reykjavíkin okkar Íslendingar á lista yfir dýrustu borgir heims og stærðu sig ýmsir af. Þótti fremur töff að eiga dýrari höfuðborg en frændur okkar í Noregi.

Sé hægt að tala um samkeppni í þessu sambandi er Reykjavík löngu fallin af stalli sem ýkja dýr borg en Norðmenn bæta í ef marka má nýbirtar niðustöður Numbeo.com sem safnað hefur upplýsingum um kostnað í borgum heimsins um nokkurra ára skeið.

Norðmenn áttu hvorki fleiri né færri en fjórar af tíu dýrustu borgum heims í byrjun þessa árs og kemur engum Íslendingi á óvart sem þangað hefur ferðast undanfarið. Reyndar er Sviss líka með fjórar borgir á topp tíu en það ætti heldur ekki að koma sálu hérlendis á óvart.

Ekki er það þó Osló sem titilinn tekur heldur Þrándheimur, Stafangur er í öðru sætinu og svissneska borgin Zurich treður sér í þriðja sætið áður en Osló kemst að. Til að kóróna allt saman nær Bergen níunda sætinu árið 2011.

Það sem gerir þessa ákveðnu könnun raunverulegri en margar aðrar slíkar er sú staðreynd að það eru lesendur Numbeo í hverju landi og borg fyrir sig sem tilkynna verð á hinum ýmsu vörum og þjónustuflokkum. Tölurnar nú byggjast því að upplýsingum frá 23 þúsund einstaklingum sem flestir veita upplýsingar um fleiri en einn hlut.

Er núllgildið miðað við New York sem hefur stuðulinn 100 en til samanburðar er stuðull Þrándheims nú 188,91.

Dýrustu borgirnar í byrjun árs 2012 eru eftirtaldar:

  1. Þrándheimur (188,91)
  2. Stafangur (171,32)
  3. Zurich (152,84)
  4. Osló (152,03)
  5. Genf (146,24)
  6. Bern (142,44)
  7. Lúsern (139,94)
  8. Perth (139,63)
  9. Bergen (138,79)
  10. Tókíó (135,23)

Aðrar borgir í dýrari kantinum sem vert er að nefna eru Kaupmannahöfn (123,82), Mónakó (128,15), Edinborg (122,52) og London kemst á listann (118,52).