Fararheill hefur margt ritað undanfarna mánuði um líklega deyfð yfir ferðamannabransanum í London kringum Ólympíuleikana sem einmitt voru hugsaðir að stórum hluta til að trekkja að ferðafólk. Nú er loks staðfest að leikarnir fældu fólk beinlínis frá.
Ráðgjafastofan UKinbound greinir frá því að samkvæmt úttekt meðal fjölmarga ferðaþjónustuaðila í og við London eru viðskiptin hjá 88 prósentum þeirra mun minni en á síðasta ári þegar engir stórviðburðir á borð við Ólympíuleika voru í boði.
Sama úttekt leiðir í ljós að þessi fyrirtæki töldu almennt að samdrátturinn hefði numið milli 10 og 30 prósent milli ára.
Þetta er í raun stórmerkileg frétt því ein helsta ástæða þess að þjóðir heims berjast um fokdýra leikana er í því skyni að draga að fleiri ferðamenn. Var einmitt töluvert gagnrýnt á sínum tíma þegar London var valin að þessi vinsælasta ferðamannaborg heims þyrfti ekki á slíku að halda og nú er komið á daginn að það reyndist rétt.
Risaviðburðir eru því varla þess virði því kostnaður við þá er gífurlegur og hefur engin borg síðastliðin 60 ár komið út í plús eftir að halda Ólympíuleika. London hefur nú formlega bæst í þann hóp þó vitaskuld muni mannvirkin í Stratford auðvitað draga að sér einhverja forvitna ferðalanga næstu árin og áratugi.






