Pistlar

Flugfélögin og samfélagsmiðlarnir

  14/08/2012No Comments

Svo merkilegt sem það nú er þá virðast flugfélögin þrjú sem héðan fljúga til framandi landa ekki vera neitt að sanka að sér aðdáendum þrátt fyrir miklar og stórar auglýsingaherferðir.

Flugfélögin okkar eru ekkert að rokka og róla á samfélagsmiðlum nútímans

Fararheill kíkti að gamni á hversu öflug flugfélögin þrjú; Icelandair, Iceland Express og Wow Air væru á tveimur helstu samfélagsmiðlum nútímans og kemur ritstjórn á óvart hversu lítið þeim hefur orðið þar ágengt.

Er þar að sjálfsögðu um að ræða Facebook og Twitter en í dag þykir ekkert fyrirtæki með fyrirtækjum nema vera þar og gera það gott. Báðir miðlar eðalfínir til að miðla fróðlegu efni en ekki síst tilboðum og öðru slíku.

Samanburður er kannski nett ósanngjarn þar sem Wow Air er mun yngra fyrirtæki en Iceland Express og Iceland Express aftur miklu yngra en Icelandair. Engu að síður hefur Wow tekist að sanka að sér 15.485 vinum á Facebook þegar þetta er skrifað. Iceland Express hefur eignast 24.604 vini á feisinu og nartar þar með í skottið á risanum Icelandair þar sem menn hafa sennilega sofið lengur en hollt var gagnvart samfélagsmiðlum. Risinn á aðeins 28.887 vini þegar þetta er skrifað.

Við notum orðið „aðeins“ vegna þess að samkvæmt Facebook voru 265 þúsund Íslendingar skráðir á Facebook í byrjun síðasta árs. Jafnvel að teknu tilliti til að þar á meðal eru efalítið mörg fyrirtæki og slatti af börnum og unglingum er þetta samt sem áður í daprara lagi að mati ritstjórnar. Og þetta er enn verra hjá Icelandair því þeirra Facebook síða er framreidd á ensku og ætti því að ná til mun fleiri einstaklinga. En gerir ekki.

Icelandair stendur sig reyndar best á Twitter en þar fylgjast 14.416 með hverju sem fram vindur hjá fyrirtækinu. Iceland Express vekur þar áhuga 6.088 aðila meðan fylgi Wow Air telur aðeins 180 aðila.

Hvort þetta litla fylgi segir eitthvað um Íslendinga eða segir eitthvað um flugfélögin skal ósagt látið.