Öll þurfum við eitthvað við að hafa til að verða ekki kolvitlaus í hausnum. Ekki síst á það við þegar dvalist er vikum saman í sól og sumaryl á Kanaríeyjum enda fá velflestir nóg af því fyrr en síðar að flatmaga á strönd eða hanga yfir bjór á börum.

Fjölbreyttari ferðir í boði til Tenerife en gengur og gerist næstu mánuðina hjá Sunnuferðum

Fjölbreyttari ferðir í boði til Tenerife en gengur og gerist næstu mánuðina hjá Sunnuferðum

Hinar hefðbundnu íslensku ferðaskrifstofur hafa lítt haft fyrir að gera viðskiptavinum sínum lífið léttara eða skemmtilegra á erlendri grundu. Venjan er að selja ferðir til Kanarí, koma liðinu á hótel og láta það svo afskiptalaust fram að brottför.

En Sunnuferðir hafa aðeins annan háttinn á. Þar á bæ er hafin sala á beinum ferðum til Santa Cruz á Tenerife en fyrir utan ferðalagið sjálft og hótel þá eru í boði í þessum ferðum ýmis námskeið sem er sallafín leið til að stytta fólki stundirnar því ekki er minni þörf á því í fríum en þess utan.

Í boði eru jóganámskeið, Chi Gong, spænsk matreiðsla, golf vitaskuld og í sumum gert sérstaklega út á menningarferðir meðan á dvölinni stendur.

Þetta er mjög til eftirbreytni en reyndar eru ferðirnar heldur ekki í ódýrasta kantinum. Vikudvöl á einföldu íbúðahóteli kostar 139.000 á manninn miðað við tvo sem gerir rétt tæplega 20 þúsund krónur hvern einasta dag eða 40 þúsund dagurinn fyrir par eða hjón. Það er í það allra mesta að mati ritstjórnar Fararheill.