Ahhhh Flórens. Hver vill ekki stika götur þar nokkrar dagsstundir eða svo? Það er mætavel hægt hafi fólk hraðar hendur og nenni að eyða stundarkorni í millilendingu í London.

Flórens er ein af sögufrægari borgum heims og þar hægt að eyða nokkrum árum án þess að sjá allt sem þar ber fyrir augu

Flórens er ein af sögufrægari borgum heims og þar hægt að eyða nokkrum árum án þess að sjá allt sem þar ber fyrir augu

Það er nefninlega í boði þriggja daga ferð á fjögurra stjörnu hóteli á besta stað í þessari sögufrægu ítölsku borg hjá breskri ferðaskrifstofu fyrir rúmar 35 þúsund krónur plús kostnaður við flug héðan til London og til baka.

Bjóðist því sértilboð hjá Wow Air eða Icelandair á allra næstu dögum til London á tilboðsverði og taki fólk lítið sem ekkert með sér er þangað komist fyrir rúmar 30 þúsund krónur. Takist það er hægt að njóta Flórens í þrjá daga fyrir 35 þúsund á fínu hóteli með morgunverði.

Víst er smá vesen að millilenda í Gatwick eða Stansted en sé vilji til að skoða aðrar borgir en London, Köben eða Berlín án þess að borga handlegg og fótlegg er þetta eina leiðin eins og sakir standa.

Tilboðið hér og gildir fram í mars og ferðaskrifstofan sem um ræðir gömul og traust.