Það fór framhjá okkur um daginn þegar ferðaskrifstofan Úrval Útsýn auglýsti sérstakar köfunarferðir til Tenerife á Spáni með haustinu en brún okkar lyftist þegar við sáum auglýsingu þess efnis. Okkur vitandi ekki verið boðið upp á slíkt áður og til fyrirmyndar að brydda upp á slíkum nýjungum jafnvel þó áfangastaðurinn sé gamalkunnur.

En svo runnu fljótt á okkur tvær til þrjár grímur þegar nánar var skoðað.

Um er að ræða tvær vikuferðir með ágætu hóteli með hálfu fæði plús sex ferðir undir yfirborð sjávar með reyndu köfunarfólki. Sú fyrri fyrir óvana en sú seinni fyrir reyndari kafara. Með í för er íslenskur fararstjóri sem mörgum þykir ómissandi kostur í ferðum erlendis.

Á vef ÚÚ er „verð á mann“ auglýst á 202.500 krónur fyrir fyrri ferðina 4. til 11. september. En sá sem reynir að kaupa á því verði fær fljótt að vita að engin herbergi eru í boði fyrir einn. Þannig breytist tilboðið strax því það miðast við tvo saman í herbergi. Þannig er kostnaðurinn orðinn tvöfaldur fyrir vikudvölina eða 405.000 krónur fyrir tvo.

Svo vill til að systurfyrirtæki Úrval Útsýn, Plúsferðir, hefur til sölu flug til Tenerife þessa sömu viku. Þangað kemst einstaklingurinn fram og aftur fyrir 101.000 krónur eða 202.000 tveir saman.

Og svo fundum við þetta hér eftir skamma leit:

dive

Þarna er breskir aðilar með tólf ára reynslu á Tenerife að bjóða vikudvöl með sex köfunum, sama fjölda og viðskiptavinum Úrval Útsýn býðst, plús gistingu í viku á íbúðahóteli fyrir 450 evrur vikuna. Miðað við miðgengi dagsins gerir það tæplega 72 þúsund krónur fyrir tvo saman. Og á vefnum má finna fjölmarga aðila sem bjóða pakka með köfun á eynni á svipuðu verði.

Þannig er hægt að taka svipaðan köfunarpakka og Úrval Útsýn býður á Tenerife í viku í september fyrir 274 þúsund krónur samtals eða 130 þúsund krónum ódýrar en Úrval Útsýn.

Fyrirvara skal vissulega hafa því enginn er íslenskur fararstjóri og heldur eru ekki innifaldar ferðir til og frá hóteli. Þá er enginn matur innifalinn heldur. En það má kaupa töluvert af ferðum og matvælum fyrir 130 þúsund krónur ef út í það er farið.

Engu að síður fínt mál að ferðaskrifstofan bjóði nýjungar. Skortur hefur verið á slíku undanfarin ár.