Velflestir landsmenn hafa nú gefist upp á að fá sól á kroppinn á ylhýra föðurlandinu þetta sumarið enda langt komið og sól farin að hníga feitt til viðar. Tvennt er til ráða í þeirri stöðu. Kaupa næsta flug út og næla sér í Evrópusól áður en yfir lýkur og greiða formúgu fyrir með stuttum fyrirvara ellegar byrja nú að setja peninga til hliðar og veita sér eitthvað ALMENNILEGT þegar veturinn vinur okkar er kominn fyrir alvöru.

Fyrir þá síðarnefndu tók Fararheill saman þrjár æði safaríkar ferðir sem í boði eru erlendis frá í vetur sem bæði gefur áhugasömum rúman tíma til að finna allra ódýrustu fargjöld héðan og heim aftur en ekki síður setja peninga í bauk í nokkra mánuði og staðgreiða ævintýrin. Yfirstandandi sumar má nefninlega fara fjandans til ef hægt er að hlakka til sólardaga og ævintýra um miðjan vetur í staðinn.

TILBOÐ A:

Sextán daga tvískipt ferð til Egyptalands. Fyrst er flogið í sólarparadísina í Hurghada við Rauðahafið beint frá London í Englandi og þar dvalið í níu nætur á fimm stjörnu hóteli með öllu innifalið. Næg sól á kroppinn þar og einhverjar bestu köfunarslóðir sem um getur. En ævintýrinu lýkur ekki með þeim sælureit heldur er fólk svo flutt á skipsfjöl á hinni stórkostlegu Níl og þar er siglt um í tómum lúxus í sjö nætur og allur matur innifalinn. Nú mætti halda að slík lúxusferð setji mann og annan í gjaldþrot sökum kostnaðar en kannski einhverjum bregði við að heyra að þessi ferð kostar, miðað við miðgengi 19. júlí, aðeins 106 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Plús flug til og frá London. Í boði frá nóvember fram til apríl á ákveðnum dagsetningum hjá ferðskrifstofunni Travelwasp í Bretlandi.

TILBOÐ B:

Stundum þarf maður bara að lyfta sér alvarlega upp þó pyngjan sé létt. Þá er óvitlaust að skoða tvískipt tilboð bresku ferðaskrifstofunnar Holiday Place til Dúbai og Mauritíus frá september til nóvember. Flogið til draumaeyjunnar Mauritíus, sem Fararheill hefur haft kynni af og gefur allra bestu einkunn, og þar gist í viku á fjögurra stjörnu hóteli með öllu inniföldu og þar á meðal golfi. Í kjölfarið flogið til Dúbai í Sameinaða arabíska furstadæminu og þar dúllast á góðu hóteli miðsvæðis í þrjá daga áður en flogið er aftur til Bretlands. Þetta er lúxus alla leið og kostnaðurinn 258 þúsund krónur á mann miðað við tvo. Plús auðvitað ferðir héðan til London.

TILBOÐ C:

Þó komið sé fram í september er enn funhiti við Miðjarðarhafið og það er þangað sem lúxusskipið Ventura siglir frá Southampton í Englandi í tólf nátta siglingu þann 1. september sem einungis kostar 130 þúsund krónur á mann og matur allur innifalinn. Í viðbót flug til og frá Englandi. Skipið glæsilegt en áfangastaðirnir ekki síðri. Stoppað er í Lissabon, Funchal á Madeira og Lanzarote, Tenerife og Kanarí. Þetta er la dolce vita par exellens. Það er skipafélagið P&O Cruises sem þetta bjóða en pláss takmarkað og grípa verður tækifærið strax.