Góðir tímar gætu farið í hönd næsta sumar fyrir ferðaþyrsta ef marka má heimildamenn Fararheill. Minnst eitt erlent flugfélag hefur skoðað möguleikann á því að bjóða reglulegt millilandaflug frá Evrópu til Egilsstaða yfir sumartímann.
Þetta fær Fararheill staðfest óformlega í tölvupósti gegn trúnaði en ekki fæst uppgefið hversu langt þær hugmyndir eru á veg komnar eða hvort formleg umsókn hefur verið send yfirvöldum hérlendis. Um er að ræða þekkt flugfélag.
Það var aðeins tímaspursmál áður en erlend flugfélög færu að veita Íslandi meiri athygli enda vart farið framhjá neinum í bransanum að Ísland er brennheitur áfangastaður ef svo má að orði komast. Þó nokkur erlend flugfélög hafa þegar fengið reynslu á ferðir sínar hingað til lands og hana góða og nægir þar að nefna easyJet sem aukið hefur tíðni hingað til lands sökum vinsælda.
Á sama tíma og Egilsstaðaflugvöllur liggur nánast ónotaður austur á landi er allt í uppnámi í Keflavík þar sem flugstöðin er löngu sprungin og eftirspurn meiri en Isavia getur afgreitt með góðu móti. Þá gætu orðið miklar tafir þar næstu ár ef ákveðið verður að byggja nýja flugstöð frá grunni en hugmyndir þar að lútandi hafa verið reyfaðar. Í öllu falli er ljóst að ef spár um ferðamannafjölda hingað ganga eftir er Leifsstöð í núverandi mynd úrelt fyrirbæri.
Ekki er samt sopið kálið því þó flugvöllurinn á Egilsstöðum sé sæmilegur og dugi undir millilandaflug er varla hið sama hægt að segja um litla flugstöðina ef ferðir verða örar. Ýmsu þarf að kippa í liðinn og kosta til áður en slíkt getur átt sér stað.
Erlend flugfélög eru ekki ein um að líta ferðir til Egilsstaða hýru auga. Það gerir eigandi Wow Air líka en í samtali við Morgunblaðið síðasta sumar lýsti Skúli Mogensen yfir að Austurland væri ákaflega vænlegur staður til að byggja upp flugþjónustu í framtíðinni.







