Svo gæti farið í framtíðinni að hin sólríka eyja Mallorca verði allt of dýr fyrir meðalJón og meðalGunnu. Allavega ef varaborgarstjóri Palma fær sínu fram. Sá telur ferðamenn á eynni eyða of litlum peningum og hefur lagt fram áætlun um að breyta stórum hluta ódýrra hótela við bestu strönd borgarinnar í lúxusíbúðir og hótel og freista þess í framtíðinni að fá í heimsókn Sádí-Araba og Kínverja í stað Evrópubúa.

Kínverskar og arabískar tær eiga að trítla um þessa fallegu strönd í framtíðinni ef áætlanir á Mallorca ná fram að ganga
Mallorca hefur lengi verið kölluð þýsk nýlenda af gárungum enda eiga fleiri Þjóðverjar þar íbúðir en Spánverjar og eyjan hefur lengi verið stopp númer eitt, tvö og þrjú meðal sól- og áfengisþyrstra Þjóðverja.
En þeir eyða ekki nægum peningum að mati Alvaro Gijon, varaborgarstjóra, og hann hefur allnokkra stuðningsmenn í borgarráði Palma til að breyta skipulagi við strönd borgarinnar svo þar verði einvörðungu fjögurra til fimm stjörnu lúxushótel sem ætlað er að freista ríkra Araba og Kínverja sem eru þeir aðilar sem eyða hvað mestum fjárhæðum á ferðalögum.
Samkvæmt þýska slúðurblaðinu Bild ætla þýskir ekki að taka slíkum áætlunum af jafnaðargeði og hafa mótmælt kröftuglega og gætu haft sínu fram því margar bestu eignir við Playa de Palma eru í þeirra eigu.
Gijon lætur sér ekki bregða við slíkt og þegar hefur verið hafist handa við að breyta litlum hluta við strandlengjuna í vænlegri kost en hann veit líka sem er að borgaryfirvöld mega heldur ekki hrekja þýska of kröftuglega frá. 40 prósent af tekjum eyjaskeggja allra koma nefninlega beint frá þýskum ferðalöngum.







