Við hjá Fararheill höfum verið hugsi að undanförnu varðandi þá áráttu ferðaskrifstofa hérlendis að auglýsa verð sín miðað við einn einstakling þegar slíkt er alls ekki í boði þegar allt kemur til alls. 

Verð auglýst miðað við einn en það er alls ekki í boði.

Verð auglýst miðað við einn en það er alls ekki í boði.

Mýmörg dæmi eru um slíkt og okkur vitandi hefur hin aðgerðalausa Neytendastofa ekkert út á það að setja.

Nýjasta dæmið er sérstök golferð Icelandair til Denver í Bandaríkjunum í samstarfi við þarlenda ferðaskrifstofu, Wonders of Colorado, sem tveir Íslendingar hafa sett á laggirnar. Þar eru í boði vikulangar golfferðir með haustinu með hóteli, bílaleigubíl og sex golfhringjum fyrir 296.900 krónur.

Nema hvað ferð þessi fæst ekki undir 593.800 krónum því ekki er í boði að fara einn eða ein. Pakkinn miðast bara við tvo eða fleiri saman.

Fararheill telur reyndar að hægt sé að bjóða töluvert betur en Wonders of Colorado er að gera hafi fólk hug á golfiðkun þar. Þessi ákveðna ferð gerir ráð fyrir að spilaðir séu sex hringir á sjö dögum og slíkt gerir jú enginn nema þeir sem ekki sjá sólina fyrir golfi.

En er ekki kjánalegt að fljúga alla leið til Denver, flugtími nítján klukkustundir með flugvöllum báðar leiðir, og gera ekkert annað en spila sex hringi?

Hótelið sem um ræðir í tilboðinu er í úthverfi borgarinnar fjarri glysi, glaumi og helstu verslunum og spottakorn þarf að keyra til og frá völlum hvern einasta dag ferðarinnar. Svo þarf líka að keyra í miðbæinn ef svo ber undir ætli fólk að lyfta sér upp, fata sig upp í verslunum eða bara láta þunnan vindinn leika um kinnar á kaffihúsum.

Sé hugmyndin að spila golf út og eitt og sýna engan áhuga á menningu og þjóð er mun ódýrara, skemmra  og líklega skemmtilegra að skella sér til Skotlands, Englands eða Danmerkur.

Ekki finnst hótel með rúmi fyrir einn að því er fram kemur á bókunarvél Icelandair

Ekki finnst hótel með rúmi fyrir einn í Denver að því er fram kemur á bókunarvél Icelandair