Það er eins gott að Fararheill er ekki útvarpsþáttur því við höfum slefað út í eitt síðustu klukkustundirnar eða svo eftir að við rákumst á sextán daga tilboðsferð um velflesta merkilega staði Kaliforníu og það undir 300 þúsund krónum frá Bretlandi.

Monument dalurinn er eitt stopp af fjölmörgum í vænni ferð bresku ferðaskrifstofunnar Riviera Travel

Monument dalurinn er eitt stopp af fjölmörgum í vænni ferð bresku ferðaskrifstofunnar Riviera Travel

Einn allra stærsti plúsinn við Kaliforníu er að þar þarf ekki að eyða tíma að liggja yfir veðurfréttum enda nánast sól og blíða 365 daga á ári. Til er margt verra við þær kringumstæður en að skoða staði á borð við Mojave eyðimörkina, Miklagljúfur, Monument dalinn og Yosemite þjóðgarðinn fyrir utan bæi og borgir eins og San Diego, San Francisco, Los Angeles, Sedona, Phoenix og Las Vegas.

Vissulega skautað hratt yfir margt í þessari ferð bresku ferðaskrifstofunnar Riviera Travel en lífið er jú þokkalega stutt og þó menn glaðir vildu gefst fáum tækifæri að eyða öllum þeim tíma sem þá langar á öllum þeim stöðum sem þá langar.

Prísinn miðast við ódýrustu dagsetningu í mars á næsta ári en í boði eru fjölmargar ferðir sem kosta aðeins meira. Í ferðinni er gist allar nætur í sæmilegum hótelum, þriggja eða fjögurra stjörnu, og allir miðar í alla garða auk leiðsagnar um allar borgirnar í ferðinni.

Ferðalög gætu verið töluvert verri en þetta jafnvel þó að allnokkur tími sé í rútum á þvælingi þessa sextán daga. Tekið skal fram að tilboðið miðast við tvo einstaklinga sem ferðast saman en viðbótarkostnaður fylgir ætli menn einir síns liðs.

Nánar hér. Ferðaskrifstofan sem um ræðir er viðurkennd og þekkt en vitaskuld bætist kostnaður héðan til London og til baka við heildarverðið.