Sé hægt að tala um að bær slái þrjár flugur í einu höggi gagnvart ferðamönnum er næsta víst að Alpabærinn Livigno fellur í þann flokk með bravúr. Bærinn státar af hreinu og fersku fjallalofti, fyrirtaks skíðasvæðum á veturnar og útivistarsvæðum á sumrin og rúsínan í pylsuendanum er svo að allt sem hér er til sölu skattfrjálst frá a til ö.

Fegurð, ferskt loft og verðlag langt undir því sem gerist annars staðar í smábænum Livigno á Ítalíu

Fegurð, ferskt loft og verðlag langt undir því sem gerist annars staðar í smábænum Livigno á Ítalíu

Bæjarbúar njóta nefninlega þeirra sérréttinda að enginn sem hér selur varning þarf að greiða skatt til ríkisins eins og raunin er alls staðar annars staðar á Ítalíu eða í Sviss eða víðast hvar annars staðar í Evrópu. Livigno er staðsettur hátt í Alpafjöllum Ítalíumegin en nálægt landamærunum við Sviss og sirka þrjár klukkustundir bæði frá Mílanó og Zürich.

Bærinn er staðsettur í lokuðum fjallasal við lítið vatn og löngum var þangað afar erfitt að komast sem varð til þess á öldum áður að stjórnvöld gáfu bæjarbúum eftir alla skatta til að vega upp á móti því að búa svo afskekkt. Svo einfaldlega gleymdist að breyta lögunum og enn greiða íbúar enga skatta nema tekjur fari yfir ákveðið lágmark.

Sem hefur í för með sér að hér hafa risið upp eins og gorkúlur ótrúlegur fjöldi verslana með hinn ýmsa varning sem ferðamenn geta keypt og þurfa ekki að safna saman nótum eða kvittunum til að fá söluskatt endurgreiddan.


View Livigno á Ítalíu in a larger map