Við hjá Fararheill erum sannkristin þegar kemur að jafnrétti. Þar sem við vorum að hnýta í Wow Air er ekki úr vegi að jafna vogarskálarnar aðeins með skeyti á Icelandair. Sama Icelandair og leyfir okkur að „fljúga vel.“
En það er dálítið með Icelandair og íslenska stjórnmálamenn. Stóru orðin koðna niður þegar á Birkir Hólm er komið. Til dæmis er engan veginn hægt að segja að þessi ágæti einstaklingur hafi „flogið vel.“
Risafyrirtækið Icelandair með sinn milljarða hagnað gegnum íslenska náttúru og Eyjafjallajökul er enn ekki að fatta hvað góð þjónusta er. Bætur vegna tafa og rugls? Talaðu við þjónustuver. Hjá þjónustuveri segir tölvan nei eftir fimmtán daga. Þá fer skeytið í deild Z-17 þar sem sitja þrír erlendir starfsmenn með takmarkaða kunnáttu í ensku. Þeir reykja bara og gera ekki annað en senda kvörtunina áfram til utandeildar 14-BC sem skoðar málið með tíð og tíma en má ekki taka neinar ákvarðanir. Skeytið aftur upp í dagsljósið þar sem yfirmaður kvörtunardeildar er í fríi á Tenerife og enginn má trufla hann. Skeytið til baka til 14-BC þar sem allir eru farnir heim enda borgar fyrirtækið enga yfirvinnu. Fimmtán dagar líða en svo kemur yfirmaðurinn úr sólarfríinu sínu og ákveður að hafna öllum bótakröfum. Hann fær enda skammir í hatt ef hann þarf að greiða eitthvað út og er það tekið af hans eigin launum.
En svona grínlaust. Milljarða hagnaður hlýtur að kalla á að það sem Icelandair kallar þjónustudeild fari að standa undir nafni. Eða hvað Birkir Hólm? Þessi ákveðni einstaklingur á sannarlega rétt á bótum ef rétt er með farið. Hvers vegna að senda mann sem stendur í bullandi vandræðum hingað og þangað um fyrirtækið?
Nema það sé hugmynd Birkis Hólms um hvað þjónusta sé…








