Það er aldeilis uppi typpið á Skúla Mogensen og félögum hjá Wow Air. Nýlega búið að bæta við áætlunarferðum til Montréal og Toronto í Kanada og nú ætlar flugfélagið að henda í ferðir til bæði Los Angeles og San Francisco í Kaliforníu.

Kalifornía á kortið hjá Wow Air. Mynd Wow Air

Kalifornía á kortið hjá Wow Air. Mynd Wow Air

Það æði stór skref hjá litlu flugfélagi mætti virðast við fyrstu sýn. Ekki síst þar sem Wow Air þarf að bæta þremur breiðþotum við flugflotann til að sinna nýju áfangastöðunum.

En þetta er þó æði rökrétt skref. Kalifornía er eitt ríkasta fylki Bandaríkjanna og ekki síst þeir sem búa í San Francisco og Los Angeles. Á báðum stöðum milljónir sem eiga of mikla peninga til að eyða. Þá er þetta ekki slæmur kostur fyrir Íslendinga heldur þó það skipti sennilega engu máli í þessu samhengi. Sól og sandur í tonnavís í Los Angeles svona ef nóg þykir komið af Flórída og Kanaríeyjum.

Aðalatriðið þó kannski það að það er komin góð reynsla af flugi sem þessu. Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian hefur um hríð flogið beint til beggja þessara staða frá Noregi og víðar. Það bæði gengið snurðulaust og vélar félagsins á þessum leiðum með toppnýtingu.

Þessu til viðbótar er Ísland funheitur áfangastaður. Allt gerir þetta að verkum að áhættan er afar lítil. Flott skref hjá Wow Air.