Loks þegar manni sýnist Wow Air vera að ná tökum á margra vikna töfum og veseni poppar meira vesen upp úr dúrnum.

Meiri tafir? Mynd Wow Air

Meiri tafir? Mynd Wow Air

Flugfélagið hefur tekið sér langan tíma að færa flugáætlun sína í rétt horf eftir að ein véla þeirra datt úr skaftinu hér fyrir nokkrum vikum síðan. Það hafði tafir í för með sér í tvær vikur á eftir með tilheyrandi veseni fyrir farþega en ekki síður fyrir Wow Air. Það er flókið mál að púsla saman nýrri flugáætlun þegar ein vél dettur út sísona. Sérstaklega þegar varavél er ekki til staðar.

En fyrr í vikunni tókst það þó hjá Wow Air. Engar áberandi tafir voru á komum eða brottförum frá Keflavík seinnihluta vikunnar sem er að líða.

En svo rákumst við á þetta:

wowbætur

Vél Wow Air sem átti að fara til London klukkan 15:25 lagði ekki af stað fyrr en fjórum klukkustundum síðar!!! Sem fyrr ekki stafur um þetta á vef Wow Air sem vill greinilega ekki að neinn frétti af miklum töfum ítrekað og aftur. Engin leið að vita hvers vegna þessi vél tafðist þetta lengi.

Það er hins vegar morgunljóst að allir farþegar um borð eru með áskrift að bótum fyrir flugið nenni þeir að leita eftir. Það tæplega 50 þúsund krónur miðað við gengi dagsins svo það munar um minna. Ástæðan sú að komi einhver þremur tímum of seint á áfangastað eru bætur tryggðar samkvæmt Evrópureglum. Engin leið er fyrir þessa vél að ná þeim tíma. En auðvitað þarf að ganga á eftir þeim bótum.

Og ekki vorkenna Skúla Mogensen neitt að þurfa að punga út. Hann fær reglulega drjúgan afslátt á krónum í hvert sinn sem hann rúllar inn með milljarða erlendis frá og græðir því duglega á íslenskum almenningi þar fyrir utan allt annað.