Það kemur ýmsum á óvart að töluverður verðmunur getur verið á flugi hjá Heimsferðum annars vegar og Primera Air hins vegar.
Fyrir þá sem ekki vita eru þetta nánast sömu fyrirtækin en Heimsferðir eru í eigu Primera Air Group sem einnig rekur samnefnt flugfélag sem nú ert gert út frá Lettlandi en þar í landi eru laun og reglur af skornum skammti.
Raunin er að gegnum ferðaskrifstofuna Heimsferðir má stundum kaupa flug á fimm til tíu þúsund króna lægra verði en þú greiðir fyrir sama flug á vef Primera Air. Sem dæmi um það má þegar þetta er skrifað kaupa flug aðra leið til Barcelóna þann 17. júní fyrir 24.900 krónur á mann en sama flugferð á vef Primera Air kostar manninn 34.995. Rúmlega tíu þúsund króna verðmunur á kjaft sem aldeilis munar um ef margir ferðast saman.
En bíddu, ekki fara strax. Tókstu eftir að við sögðum „stundum.“
Þetta snýst nefninlega alfarið við ef þig langar svo að fljúga í júlí svo dæmi sé tekið. Þá horfir svo við að flugfargjöld Heimsferða eru DÝRARI en hjá flugfélaginu!!!
Annað dæmi af handahófi: Flug aðra leið til Barcelóna þann 8. júlí kostar 29.900 krónur hjá Heimsferðum. En sæti í sömu vél gegnum bókunarvél Primera Air kostar lægst 22.995 krónur. Tæplega sjö þúsund króna verðmunur á nákvæmlega sömu þjónustu. Sem aftur er peningur sem skiptir máli ef fjölskylda þarf fjóra farmiða til dæmis.
Ekki kunnum við hjá Fararheill skil á því hvers vegna verðlag rokkar upp og niður milli sömu aðila. Við hefðum jú haldið að það væri betri þjónusta að ganga að sömu hlutum vísum hjá einu og sama fyrirtækinu. En Primera Air hefur svo sem aldrei verið sakað um að veita góða þjónustu.








