[orbit]

Sem endranær er vandlifað í þessum heimi. Það ekki hvað síst við þegar ætlunin er að festa svefn eina nótt eða svo á besta hóteli heims.

Ekki svo að skilja að flókið sé að bóka nótt ef nægir peningar eru inni á kortinu á besta hóteli heims. Vandinn kannski meiri að það eru svo mörg „bestu“ hótel heims.

Þau skipta tugum samtökin, dagblöðin, tímaritin og eða samfélagsmiðlarnir sem ár hvert velja besta eða bestu hótel heims. Stundum er greitt atkvæði um þann titil, stundum velur sérstök nefnd þau bestu og stundum kemur ekkert fram hvernig að valinu er staðið.

Ritstjórn fannst tilvalið að pikka út fjögur bestu hótel heims sem valin hafa verið hjá fjórum „háttvirtum“ aðilum í bransanum og skoða hvort nótt á þeim færi nokkuð með krónueiganda þráðbeint á höfuðið fjárhagslega.

Travel+Leisure: Oberoi Udaivilas

Eins og sjá má á myndinni hér að ofan er fimm stjörnu Oberoi Udaivilas ekkert nema lúxus út í gegn. Ekki aðeins eru húsakynnin af stórkostlegra taginu heldur ekki síður spennó að hótelið er alveg út af fyrir sig á lítilli eyju í Udaipurwati á Indlandi af öllum stöðum. Sem sagt ekki mikið í leiðinni hjá þorra Íslendinga sem leggja land undir fót. En ef svo ólíklega vildi til þá er bót í máli að næturgisting hér kostar engar formúgur. Á hótelbókunarvef okkar finnst gistinótt niður í 40 þúsund krónur á lágannatíma.

TripAdvisor Choice Awards: Umaid Bhawan Palace

Alveg óhætt að stara opinmynnt á myndir frá Umaid Bhawan Palace sem var valið Choice Awards hjá ferðarisanum TripAdvisor nýlega. Þó sá miðill veiti fjölda verðlauna árlega þá er Choice Awards toppurinn á því öllu. Hér líka koma Indverjar sterkastir inn með hótel sem lítur meira út eins og konungshöll en gististaður. Umaid Bhawan höllin í Jodhpur héraði á fáa sína líka í því landinu og þótt töluvert víðar væri leitað. Ekki er leiðinlegt heldur að vita til þess að við finnum gistinótt hér á lágannatíma niður í 39 þúsund krónur íslenskar. Það er vel innan marka.

World Luxury Hotel Awards: Hullett House

Eins og skilja má af nafninu þá kemur ekkert hvaða hótel sem er til greina hjá þessum samtökum er sérhæfa sig í lúxushótelum. Og sigurvegari þessa árs ekki eitthvað nýtískulegt háhýsi heldur þvert á móti eitt elsta hótel Hong Kong. Hullett House er á minjaskrá Hong Kong sem borgararfur og með þann arf hafa núverandi eigendur farið vel með. Hér lekur glansinn af öllu saman og hönnun herbergja þykir hafa tekist sérdeilis vel en mótífin alltaf þau sömu: gamalt austurlenskt plús framúrstefnulegt vestrænt. Hér þykir reyndar mjög gott að dvelja nótt undir 60 þúsund krónum.

World Travel Awards: La Mamounia

World Travel Awards er líklega sú hátíð ferðabransans sem kemst næst því að kallast Óskarsverðlaun þess geira í heiminum. Hér reyndar valið um ýmis konar hótel og gististaði í sérflokkum en æðsti flokkurinn er svokallaður Worlds Leading Hotel og hótelið sem þann heiður hlaut nú er La Mamounia í Marrakesh í Marokkó. Það kemur einhverjum á óvart kannski eða allavega þangað til fólk kíkir á myndir af svæðinu en munnvatnsframleiðsla eykst samstundis. Það kostar líka sitt að hanga hér og tæplega undir 50 þúsund krónum eða svo per nótt.

[vc_empty_space height=“12px“][vc_basic_grid post_type=“post“ max_items=“6″ item=“basicGrid_SlideFromLeft“ grid_id=“vc_gid:1458074388235-5712b91d-ab2a-0″ taxonomies=“262″]