Ár og dagur er síðan ein frægasta stytta Evrópu, Mannekin Pis í Brussel, varð að gera hlé á pissusprænu sinni en sökum kuldanna í Evrópu hefur verið skrúfað fyrir flæðið.
Ferðamenn í Brussel munu því ekki upplifa pissustand Mannekin Pis sem bókstaflega þýðir litli pissandi strákurinn á horni Rue de l’Étuve og Rue du Chêne næstu dægrin en borgaryfirvöld óttuðust að kuldarnir gætu skemmt pípulagnir piltsins og fyrirskipuðu lokun á fimmtudaginn var.
Þessi litla stytta, hún er aðeins 61 sentimetri, er merkilegt nokk einn allra vinsælasti áfangastaður ferðamanna í borginni en hún var smíðuð árið 1619. Er þetta ein af fáum styttum sem eiga sinn eigin fataskáð en Mannekin Pis er reglulega klæddur í hinn ýmsa fatnað með reglulegu millibili og stöku sinnum líka er hann tengdur bjórkút en ekki vatnslögnum og geta þá gestir og gangandi látið piltinn míga bjór í glös.
Færri vita að Mannekin Pis á sér systur sem er öllu yngri enda smíðuð 1987. Sú heitir Jeanneke Pis og stendur við Impasse de la Fidélité út frá Beenhouwersstraat. Sýnir hún stúlku á hækjum sér að pissa og það af mikilli gleði.






